Bush

Kim Jong-ilGeorge W. Bush, forseti Bandaríkjanna hefur sent Kim Jong-il, þjóðarleiðtoga N-Kóreu bréf. Cristopher Hill, erindreki Bandaríkjamanna afhenti bréfið, en hann hefur lokið þriggja daga heimsókn í landinu.

Tilgangur heimsóknar Hill var að kanna niðurrif kjarnakljúfsins í Yongbyon.            N-Kóreumenn hafa samþykkt að hætta kjarnavopnaáætlun sinni í skiptum fyrir aðstoð og ýmsar tilslakanir á refsiaðgerðum. 

Hvað ætli hafi nú staðið í bréfinu frá Bush?  Varla hefur hann sagt, elsku vinur og félagi.  Það væri fróðlegt að vita meira um innihald þessa bréfs.  Ég efast um að Bus hafi verið að bjóða einhverjar, að'stoð, miklu líklegra að hann hafi verið að hóta stríði.  En manngreyið hann Bush er stríðsóður og er á góðri leið með að slá þeim við, Hitler og félögum hans.   


mbl.is Kim Jong-il fékk bréf frá Bush
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Kemur á óvart að Bush skyldi senda bréf, vissi ekki að hann væri skrifandi.  Annars hefur forseti BNA marga ráðgjafa kannski einhver þeirra sé skrifandi og hafi þá getað aðstoðað hann?

Jóhann Elíasson, 7.12.2007 kl. 11:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband