Leiðinlegir þættir

Leno lofar að hefja upptökur án höfunda eftir áramót.

Jay Leno og Conan O’Brien hafa heitið því að hefja upptökur á spjallþáttum sínum eftir áramót. Þó að höfundar og skríbentar þáttanna verði ennþá í verkfalli. Leno sagði við BBC að honum fyndist hann hafa skyldum að gegna gagnvar þeim 100 starfsmönnum sem starfa hjá honum við annað en skriftir.

 

O’Brien sagði að þátturinn yrði ekki jafn góður og á köflum yrði hann örugglega hræðilegur.

Undanfarið hafa endursýningar komið í stað spjallþáttanna. David Letterman og Craig Ferguson sem einnig eru með spjallþætti seint á kvöldin hafa sóst eftir undanþágu og tímabundnum samningum við Rithöfundasamband Bandaríkjanna.

Mér hefur alltaf þótt þessir þætti hundleiðinlegir og ef þeir eiga nú að versna eftir áramót mun ég ekki reyna að horfa á einn einasta þátt.  Það hefur oft verið sagt;  "Lengi getur vont versnað"  og mun það sannast á þessum þáttum.


mbl.is Lofa slæmum þáttum eftir áramót
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingunn Jóna Gísladóttir

Ég verð að viðurkenna að ég hef alltaf horft á byrjunina á Jay Lenno, ég hef hlegið mikið af Bush og Ljósku bröndurunum hans. Annars þoli ég ekki heimska Bandaríkjamenn Eigðu góðan dag, kær kveðja Ingunn

Ingunn Jóna Gísladóttir, 18.12.2007 kl. 11:47

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég hef aldrei skilið bandarískan húmor, þá er sá breski langt um betri.

Jakob Falur Kristinsson, 18.12.2007 kl. 11:54

3 identicon

Jay Leno er með ömurlegan þátt já...en Conan O'Brian er mjög fyndinn yfirleitt. Ekki alveg sama tóbakið þarna á ferð!

Davíð 19.12.2007 kl. 00:00

4 Smámynd: Ingunn Jóna Gísladóttir

Bretarnir eru náttúrulega ofboðslega fyndnir, og oft er hægt að hlægja bara að útlitinu þeirra. Hafðu það gott, kær kveðja Ingunn

Ingunn Jóna Gísladóttir, 19.12.2007 kl. 00:06

5 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég var búinn að nefna að breski húmorinn væri miklu betri en sá bandaríski og við það stend ég.

Jakob Falur Kristinsson, 20.12.2007 kl. 09:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband