Íran

George W. Bush.George W. Bush Bandaríkjaforseti sagði í dag að Íran ógnaði öryggi í öllum heiminum, og að Bandaríkjamenn og arabískar bandalagsþjóðir þeirra yrðu að taka höndum saman og stemma stigu við ógninni áður en það yrði um seinan.

Bush sagði að Íran fjármagnaði öfgasinnaða hryðjuverkamenn, græfi undan friði í Líbanon, sendi vopn til talíbana, reyni að valda skelfingu í nágrannaríkjunum með ögrandi orðfæri, virði Sameinuð þjóðirnar að vettugi og draga úr stöðugleika hvarvetna í austurlöndum með því að neita að gera hreint fyrir sínum dyrum í kjarnorkumálum.

Þetta kom fram í ræðu sem Bush hélt í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í dag. „Aðgerðir Írana ógna öryggi allra þjóða í heiminum,“ sagði Bush.

Það er greinilegt að Bush er ekki búinn að fá nóg í Írak, nú vill hann líka ráðast á Íran og gera þar allt vitlaust líka.  Hann ætlar greinilega að enda sinn forsetaferil með stæl.  Svo þykist þessi vitleysingur vera að vinna að friði í þessum heimshluta.  Mesti ófriðurinn er vegna aðgerða Bush á þessu svæði.  Hann ætti að fá ófriðarverðlaun Nóbels, ef þau væru til.  En hvað varðar Sameinuðu Þjóðirnar og að Íran virti þær að vettugi.  Þá má nú benda á að Bush gerði það sjálfur þegar hann réðst inn í Írak og nú svo virðist Ísland einnig vera að bætast í hóp þeirra, sem ekki ætla að taka mark á Sameinuðu Þjóðunum eins og nú virðist vera að ske varðandi íslenska kvótakerfið.


mbl.is Íran „ógnar öryggi allra“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þó svo að menn séu ekki stuðningsmenn Bush þá verða menn að horfa á staðreyndir. Tel ég þetta alveg rétt hjá honum en sjálfsagt sjá þeir sér einhvern hag þarna í hamaganginum hjá Írönum annars myndu þeir lítið skipta sér af.

Simon 

Simon H. W. 13.1.2008 kl. 15:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband