Handbolti

Ég er ekki mjög upptekin við að fylgjast með íþróttum, en hef samt gaman af að horfa á leiki þegar íslenska landsliðið er að keppa.  Bæði í hand- og fótbolta.  Ég veit ekki hvort það sé einhver ímyndun hjá mér en mér finnst sérstaklega í handboltanum að okkar liði gangi alltaf betur þegar það spilar í bláu búningunum en þeim rauðu.  Þegar ég horfði á leikinn við Svía og sá íslenska liðið í rauðu búningunum hugsaði ég með mér þetta er vonlaust og öruggt tap hjá okkar mönnum.  Í gær mætti íslenska liðið í sínum bláu búningum gegn Slóvökum og öruggur sigur var í höfn þrátt fyrir að besti maður liðsins Ólafur Stefánsson væri ekki með vegna meiðsla.  Nú bíð ég spenntur eftir leiknum í dag og takið nú vel eftir ef þeir verða í rauðum búningum er tap næsta öruggt en ef þeir verða í þeim bláu er sigur vís.  Nú þekki ég ekki þær reglur sem gilda um í hvaða búningum liðið á að spila hverju sinni og væri fróðlegt ef einhver gæti frætt mig um það.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband