Hrefnukvóti

Hrefna hífð um borð í hrefnuveiðibát við Ísland. Norsk stjórnvöld hafa veitt heimild til að veiða 1052 hrefnur á næstu vertíð og er það sami kvóti og veittur var á síðustu vertíð. Þá tókst aðeins að veiða helming kvótans eða 592 dýr.

Þeir eru kjarkmeiri norðmenn en við íslendingar hvað varðar hrefnuveiðar.  Við þorum engu en þeir halda sínu striki sem eðlilegt er.  Við leyfum ekki meiri veiðar á þorski en 130 þúsund tonn, en ætlum að leyfa hrefnunni að éta sín 140 þúsund tonn, sem er áætlað að hrefnustofninn éti af þorski hér við land.  Stjórnvöld telja betra að fóðra hrefnuna á okkar þorski en veiða hann og halda starfandi fiskvinnslu á Íslandi.  Atvinna íslendenginga í sjávarútvegi er minna metinn en að stuðla að aukningu á hrefnustofninum, það verður hrefnan sem að lokum étur upp þorskstofninn og snýr sér þá næst af ýsustofninum, en ekki veiðar okkar íslendinga úr þessum stofnum.  Hver skilur svona andskotans vitleysu.  Alla veganna ekki ég.


mbl.is Óbreyttur hrefnukvóti í Noregi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband