Leit

Leitarmenn við störf inni í TF-SÝN.Leit að bandarísku Cessnu 330 flugvélinni sem brotlenti um 50 mílur vestur af Keflavík í gær hófst í birtingu í morgun er dönsk Challenger herþota fór á leitarsvæðið. Unnið er út frá nýrri leitaráætlun sem reiknuð hefur verið út frá reki og áætluðum brotlendingarstað.

Þetta er tilgangslaus, líkið finnst aldrei, hefur örugglega sokkið með vélinni og þótt flugmaðurinn hafi komist út hefur hann ekki lifað lengi í ísköldum sjónum.


mbl.is Leit við erfiðar aðstæður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nei, vissulega voru líkurnar afskaplega litlar frá upphafi að vélin gæti nauðlent lítið skemmd í sjólagi eins og var þarna úti og að maðurinn hefði komist af. Hins vegar megum við Íslendingar vera þakklátir fyrir það sjónarmið sem enn er ríkjandi hér á landi að leit sé ekki blásin af svo til strax eins og hefði í gerst hjá einhverjum ríkjum við sömu aðstæður.

Gummi 12.2.2008 kl. 23:15

2 identicon

Eitt smá komment hérna þó svo að líkurnar segi manni að það finnist sjálfsagt ekkert af þessari flugvél eða mannsins sem flaug henni. Þá er að mínu mati óþarfi að kasta svona ummælum fram að þetta sé tilgangslaust. Ekkert er tilgangslaust þó svo að í þessu máli sé þetta kannski meira lokun á þessu öllu saman að menn hafi reint þrátt fyrir að litlar líkur á árangri. En einnig að menn hætti bara ekki ef eitthvað virðist vonlaust eða að líkurnar séu á móti manni. Maður á að reina eins og hægt er því ef það væru ekki til menn sem væru til í það þá væri ábyggilega mun meira um dauðsföll. Bara sem dæmi meðlimi hjálparsveitana sem að hlaupa til í nánast hvað sem er. Frá vinnu, fjölskyldu og öllu bara til að hjálpa manneskjum sem þeir þekkja ekki neitt og eru til í að stofna sjálfum sér í hættu til að aðstoða og allt í sjálfboðavinnu. Veit ég um dæmi þar sem vinna þeirra hefur kannski ekki endilega orðið til þess að viðkomandi hafi fundist en engu að síður látið þá sem stóðu viðkomandi næst líða aðeins betur. Með því að þeir vissu að allt sem hægt var að gera til að bjarga viðkomandi var gert. Þannig að allavega í mínum augum er þetta ekki tilgangslaust. Því þetta gerir svo mikið fyrir þá sem eftir eru kannski búnir að missa maka, ástvin eða einhvern sem stendur þeim næst. Vona að þú sjáir hvað þetta getur gert mikið fyrir fólkið í kringum þann sem leitað er að eða er verið að hjálpa. Annars þurfti ég að upplifa það sjálfur til að sjá mikilvægi þess að hafa svona menn og konur sem gera allt til að hjálpa sama hvernig útlitið er.

Haraldur þór 12.2.2008 kl. 23:50

3 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

nei, en betur hefði verið að leitin hefði verið blásin á um leið og vitað var í hvað stefndi. maðurinn hafði samband kl. 15:55 en þyrlan fór ekki af stað fyrr en hvenær? 16:10 eða 16:20? eftir að menn höfðu starað á skjáinn og beðið eftir að vélin hyrfi af radar.

Brjánn Guðjónsson, 12.2.2008 kl. 23:53

4 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Kannski var orðið tilgangslaust óþarft, Haraldur, en ég er sammála Brjáni um að þetta var vonlaus leit.  Það er alveg rétt hjá þér að við íslendingar erum þekktir fyrir að reyna allt sem við getum til að bjarga mannslífi.  Það skeði t.d. fyrir nokkrum árum á hinum svokallaða Flæmska hatti en þar voru mörg skip við rækjuveiðar og einn rússneskur togari tilkynnti að hann hefði misst mann fyrir borð.  Öll íslensku skipin hífðu um leið og hófu leit á meðan Rússinn tók bara einn hring og hélt svo áfram á veiðum.  En það verður líka að gæta að því að þeir sem stjóri leit stofni ekki leitarmönnum í hættu.  Mér skilst að þar sem flugvélin mun hafa farið í sjóinn hafi verið slæmt veður og talsverð ölduhæð og við slíkar aðstæður finnst aldrei neinn maður hvorki lifandi eða látinn.  Og menn eru að setja sig í stórhættu með því að fljúga láflug við slíkar aðstæður.

Jakob Falur Kristinsson, 13.2.2008 kl. 09:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband