Fjársvik

Fartölvur og símar freistuðu þjófanna. Fjármunabrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur unnið að rannsókn stórfelldra fjársvika gagnvart nokkrum rafvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu. Upphæðin nam samtals um 12,5 milljónum. Fjórir sátu um tíma í gæsluvarðhaldi vegna málsins en hefur nú verið sleppt enda liggur játning fyrir.

Er nú farið að telja 12,5 milljónir stórfelld fjársvik á sama tíma og Hannes Smárason fv. forstjóri FLGroup, fær greiddar 90 milljónir frá félagi þar sem honum tókst að tapa 70 milljörðum á einu ári.  Einhverjir hafa þurft að greiða þá milljarða með því að vera svikinn um greiðslur.


mbl.is Stórfelld fjársvik upplýst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hannes Smárason sveik engan og 90 milljónirnar voru árangurstengd laun!

Krummi 14.2.2008 kl. 13:32

2 Smámynd: corvus corax

Hvaða bull er þetta? Hannes Smárason sveik engan um þessa peninga og hann hefði örugglega getað tapað meiru ef hann hefði ekki verið eins klár og hann sýndi í verki, hann fékk jú 90 milljónirnar sem árangurstengdar greiðslur.

corvus corax, 14.2.2008 kl. 13:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband