Nýtt skip

Hera ÞH 60 við komuna til Húsavíkur í dag.Nýr bátur útgerðarfélagsins Flóka ehf. kom í dag til heimahafnar á Húsavík. Báturinn, sem ber nafnið Hera ÞH 60, er 229 brúttótonna stálbátur, smíðaður í Noregi 1962. Flóki ehf. hyggst gera Heru út á dragnót en fyrir á útgerðin dragnótabátinn Dalaröst ÞH 40 sem verður seldur.

Mér finnst alltaf mikið gleðiefni þegar hinir ýmsu staðir eru að fá ný skip.  Þótt ég sé núna hættur á sjónum, þá eru tengslin við skip og báta alltaf mjög sterk og mitt mesta áhugamál.


mbl.is Nýtt skip til Húsavíkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Það var yndislegt að sjá Heru ÞH 60 koma siglandi inn Skjálfandann í gær, fyrst horfði ég ofan af hól þar sem sést alla leið út í Flatey,
síðan fór ég niður á Maragötu og horfði á hann sigla inn í höfnina
síðan niður á höfn að horfa á hann leggjast að.
Hera var móðir skipstjórans Óskars og er mér tjáð að góðmennskan
hafi verið hennar aðalsmerki. Tengdasonur minn, Ingimar, er sonur Óskars og er hann vélstjóri um borð, jón bróðir hans er stýrimaður.
Ég bið góðan guð að blessa þennan bát og alla áhöfn hans.

                                Kveðja Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 24.2.2008 kl. 08:19

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég tek undi óskir þínar, og vona að þetta komi til með að ganga vel hjá þeim feðgum.

Jakob Falur Kristinsson, 24.2.2008 kl. 16:50

3 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Það er vonandi að það þurfi ekki að byggjast á sölu Dalarastar því hana kaupir örugglega enginn, enda báturinn ónýtur fyrir mörgum árum...

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 25.2.2008 kl. 19:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband