Sekt

Karlmanni var í Héraðsdómi Reykjavíkur gert að greiða 285 þúsund krónur í sekt til ríkissjóðs fyrir að keyra drukkinn á ljósastaur og brunahana um Skógarsel í Breiðholti. Reyndist vínandamagn í blóði mannsins 2,34‰. Var hann sviptur ökuleyfi í fjögur ár.

Nú er bara spurningin þessi:  Hvort var maðurinn sektaður fyrir ölvun við akstur, eða er sektin bara vegna brunahanans.  Eða er allt í lagi að aka ölvaðu ef ekki er ekið á brunahana, eða má aka ódrukkinn á brunahana.  Þetta er orðin mikil gáta, sem lögregla verður að ráða svo þessi atrið séu á hreinu fyrir alla ökumenn.


mbl.is Sekt fyrir að keyra ölvaður á brunahana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Enn ein klúðurslega fyrirsögnin, ég sá eina í gær, hún hljómaði svona, Vill láta ryðja héraðsdóm, og ég var viss um að hér væri rosalegt ofbeldi á ferðinni, en nei einhver Kristján sem á í útistöðum við Björgúlf, telur að hæstiréttur sé ekki hlutlaus þegar hann á í hlut.  Að ryðja salinn er dálítið annað en að vilja skipta út mönnum að mínu mati.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.3.2008 kl. 09:37

2 Smámynd: Birnuson

Orðalagið að ryðja dóm hefur tíðkast frá því í fornöld og hefur aðra merkingu en að ryðja sal. Úr Grágás: „…býð ég til sakar sækjanda og sakar verjanda að ryðja dóm þennan, og ann ég honum ísetu í dómi, nema lögrengd rétt komi til. Þá fæ ég annan réttan í stað hans…“

Birnuson, 5.3.2008 kl. 12:51

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Sigurjón við lifum í dag en ekki fornöld svo það verður að taka tillit til þess og ég efast nú um að sá sem samdi þessa fyrirsögn, sem hún Ásthildur er að vitna til, hefur ekki haft hugmynd um hvað Grágás er.

Jakob Falur Kristinsson, 5.3.2008 kl. 13:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband