Enginn Maó

Nýi peningaseðillinnÍ fyrsta skipti í tæpan áratug er ekki mynd af Maó formanni á útgefnum peningaseðlum í Kína. Á nýjum 10 júana peningaseðli er komin mynd af Ólympíuleikvangnum í Peking á framhlið seðilsins en á bakhliðinni er mynd af grískri styttu af kringlukastara.

Eru nú Kínverjar farnir að skammast sín fyrir Maó og hans gerðir.  Var ekki allt í lagi þótt mynd af honum væri áfram á peningaseðlunum eða er verið að reyna að ganga í augun á Vesturlandabúum vegna Ólimpíuleikanna.  Ég hef ekki séð að þeir sem tóku við af Maó séu neitt minn harðstjórar en hann var, jafnvel verri.  Ég las á sínum tíma Rauða-kverið hans Maós, en það var þegar ég var við nám á Bifröst og þetta var ein af kennslubókunum þar.  Í þessari bók kemur vel fram hversu mikill hugsuður og heimspekingur Maó var og margt sem þar stendur á fullt erindi til Vesturlandabúa í dag.


mbl.is Enginn Maó á nýjum seðli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Einu sinni las ég ritverk Maós í tveimur bindum.  Sammála þetta var fróðleg lesning.

Sigurður Þórðarson, 7.7.2008 kl. 11:35

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Auðvitað eru þeir að ganga í augun á vesturlandabúum.  Þeim er mikið kappsmál að halda þessa ólympíuleika.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.7.2008 kl. 14:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband