Skrýtinn byrjun hjá ráðgjafanum

Það er talsvert skrýtinn byrjun hjá hinum nýráðna efnahagsráðgjafa Geirs H. Haarde, honum Tryggva Þór Herbertssyni.  Hann rétt kom við í forsætisráðuneytinu til að komast á launaskrá og fyrsta verkefnið var að fara í frí erlendis á fullum launum.  Til hvers var verið að ráð manninn ef hann gat ekki byrjað að vinna fyrr en eftir ákveðið frí.  Þannig að ekkert gagn verður af þessum manni á næstunni.  Ef þetta er sú hagfræði sem bjarga á efnahag þjóðarinnar, þá er ekki von á góðu með framhaldið.  Þarna er bara verið að borga manninum laun fyrir ekki neitt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ertu viss um að hann sé kominn á launaskrá ? ætli hann fái ekki greitt frá og með mánmót.  Geir er í fríi 21-31 júlí, sniðugt bara að þeir byrji saman.  Þetta er nú ekkert vandamál held ég.

Ásdís Sigurðardóttir, 22.7.2008 kl. 10:55

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Hjá ríkinu fara menn á launaskrá um leið og þeir eru ráðnir og launin.greidd fyrirfram.  Þetta er ekkert vandamál að öðru leiti en því að þarna er verið að borga fyrir ekki neitt.

Jakob Falur Kristinsson, 22.7.2008 kl. 11:24

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Sorrí Jakob, ég hélt bara að þetta væri eins og í den þegar ég réði mig hjá ríkinu, laun greidd frá þeim degi er störf hófust og fyrirframgreiðsla kom ekki fyrr en eftir 3.mán.  Ef svona er í pottinn búið þá finnst mér það algjör óþarfi eins og þér.  Ekki réttlátt. Kveðja

Ásdís Sigurðardóttir, 22.7.2008 kl. 11:31

4 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Fyrirgefðu Ásdís mín, ég fór með rangt mál og ætla að leiðrétta hér og nú.  Ég var að lesa í Viðskiptablaðinu í Morgun að Tryggvi Þór Herbertsson byrjar ekki störf hjá ríkinu fyrr en 1. ágúst.  Þannig að fríð sem hann tók núna er hans sumarfrí hjá Askar Capital.  En fyrirfram greiðsla hefst strax við fyrstu mánaðarmót.

Jakob Falur Kristinsson, 23.7.2008 kl. 10:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband