Reykjanesbrautin

Reykjanesbraut hefur verið breikkuð á stórum kafla. Vegagerðin hefur óskað eftir tilboðum í for- og verkhönnun breikkunar Reykjanesbrautar úr tveimur akreinum í fjórar, frá Kaldárselsvegi vestur fyrir mislæg gatnamót Krýsuvíkurvegar að Bikhellu, um 3,3 km.

Ætlar þetta engan endir að taka að klára þennan veg.  Það var lengi vel skilti þar sem á stóð að verið væri að tvöfalda Reykjanesbrautina og verklok í ágúst 2008.  En nú er enn eftir að bjóða hluta út.  Auðvitað varð gjaldþrot verktakans til að seinka öllu verkinu.  Vegagerðin samdi við Ístak um að ljúka við verkið og hafa þeir verið að vinna þarna undanfarið.  En þá kemur allt í einu upp að smáhluti af verkinu hefur ekki verið boðin út, var ekki hægt að láta Ístak klára allt verkið.


mbl.is Breikkun hluta Reykjanesbrautar boðin út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gísli Sigurðsson

Þetta er allt boðið út í smábútum. Þetta sem nú er verið að tala um er bara hönnun á smábút frá tvöfalda hlutanum í Hafnarfirði og vestur fyrir Krísuvíkurvegamót. Þá á eftir að bjóða út sjálfa framkvæmdina á þessum bút. Síðan er eftir sá hluti sem tekur við þarna við Krísuvíkurveginn og að þeim hluta sem búið er að tvöfalda. Þannig að við megum líklega þakka fyrir ef þessu verki verður að fullu lokið á árinu 2012

Gísli Sigurðsson, 28.7.2008 kl. 12:31

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ætli þetta sé það sem sumir kalla hagræðingu og sparnaði í opinberum rekstri.

Jakob Falur Kristinsson, 28.7.2008 kl. 15:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband