Þetta er bilun

Bloggið á mbl.is hefur nú verið opnað að hluta, en hægt er að lesa textann í bloggfærslum sem stendur og sumar myndir birtast. Bilun varð í gærkvöldi í diskastæðu, en á þeirri stæðu, sem er röð tölvudiska, eru geymdar myndir bloggara og ýmsar stillingar varðandi útlit bloggs þeirra.

Ég var á fullu við að skrifa í gær þegar birtist á skjánun að bkoggið væri bilað.  Ég athugaði líka áður en ég fór að sofa en þá var enn bilað.  Í morgun taldi ég nú víst að þetta væri komið í lag en svo var ekki.  Svo fór ég núna rétt áðan að kanna málið og þá var þetta komið í lag að hluta.

Nú er bara að finna sökudólginn því einhver hefur sett færslu um eitthvað sem orsakaði eitthvað og bloggið bilaði.  Núna er þó hægt að skrifa en myndir birtast ekki nema að hluta, en vonandi verður þetta allt komið í lag eftir hádegi.


mbl.is Bloggið opnað að hluta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Villi Asgeirsson

Ég veit hver sökudólgurinn er og hvað hann var að skrifa um, en þori ekki að segja. Hann myndi enda mér emil ef ég blaðraði...

Villi Asgeirsson, 29.7.2008 kl. 11:09

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Farðu varlega Villi þú gætir endað uppí Heiðmörk og barinn illa ef þetta fréttist frá þér.

Jakob Falur Kristinsson, 29.7.2008 kl. 11:23

3 Smámynd: TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.

Sæll Jakop ég á eftir að svara athsemdum á mínu bloggi en mun gera það. En ég veit líka fullvel afhverju þessi bilun varð. Það voru þvílík skrif daginn áður um viðkvæm málefni og margir reiðir. Ég lét ekki mitt eftir liggja og sagði mitt álit hreint út á kjarnyrtri íslensku  Það hrikti í stoðunum má segja.

TARA ÓLA/GUÐMUNDSD., 29.7.2008 kl. 11:46

4 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Svo þú átti stóran þátt í þessu Tara enda ertu Vestfirðingur og skrifar kjarnyrta íslensku.

Jakob Falur Kristinsson, 29.7.2008 kl. 16:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband