Ævintýrið mitt

Ég skrifaði hér fyrir stuttu að ég væri að kaupa skemmtibát frá Danmörku, sem síðan þróaðist út í ferðamennsku á Vestfjörðum.  Mín hugmynd er sú að byggja nokkur heilsárshús á jörðunum Kvíum í Jökulfjörðum og Barðsvík á Hornströndum.  Þar sem verkefnið stækkaði stöðugt við skipulagningu sá ég fljótlega að þetta yrði mér algerlega ofviða fjárhagslega.  Því fór ég að leita eftir samstarfsaðila erlendis.  Því ekki þýðir að tala við íslensku bankana, því þeir eru með stopp á öll útlán.  Fyrir tilviljun datt ég niður á fjárfestingarsjóð í Bandaríkjunum sem veltir 6-7 billjónum USA-dollurum, árlega.  Það sem meira var að þessi sjóður er með umboðsmann hér á landi.  Ég sendi honum mitt erindi og hugmyndir og áætlaði kostnaðinn 150-200 milljónir, hann sendi þær áfram út, í gær fékk ég email frá umboðsmanninum og hann sagði að þeim hefði litist vel á þessa hugmynd og væru að skoða hana og ég fengi svar mjög fljótlega og yrði sennilega kallaður á fund.

Þannig að eins og staðan er í dag eru miklar líkur á að þetta takist hjá mér.  Þetta mun skapa 10-15 ný störf, og fleiri ef ég fer líka út í sjóstangarævintýrið en þá þarf að bæta við bátum og fólki.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll Jakob minn.

Þetta líst mér miklu betur á en ævintýrið í Danmörku og víðar.

Kannski geta börnin þín komið að verkefninu þegar fram líða stundir.

Guð blessi þig og hressi.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 3.8.2008 kl. 18:52

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Þegar þetta verður orðið flott og fínt þá býð ég þér í heimsókn Rósa.

Jakob Falur Kristinsson, 4.8.2008 kl. 13:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband