Akranes

Samgöngumálaráðuneytið hefur sent Akraneskaupstað erindi þar sem beðið er um umsögn bæjarins vegna stjórnsýslukæru á hendur bænum. Eyjólfur R. Stefánsson tölvurekstrarfræðingur kærði afgreiðslu tölvumála hjá bæjaryfirvöldum til samgönguráðuneytisins og fer hann fram á að kannað verði hvort jafnræðis hafi verið gætt við við val á aðilum sem sjá skuli um tölvuþjónustu við bæjarfélagið.

Þetta er allof algengt á landsbyggðinni að menn halda alltaf að grasið sé grænna hinum megin og í stað þess að efla atvinnurekstur í eigin bæjarfélagi.  Þá er margs konar rekstur smáfyrirtækja hrakinn í burtu.


mbl.is Kæra á hendur Akranesbæ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sævar Einarsson

Nú skil ég þig ekki, er það ekki einmitt það sem Eyjólfur er að gera með því að kæra ? ég hefði haldið að þjónustan sem hann býður uppá hafi verið sniðgenginn og tölvuþjónusta bæjaryfirvalda afhent vinum.

Sævar Einarsson, 3.9.2008 kl. 08:09

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Hvað er það sem þú skilur ekki?  Það stendur í greininni að Eyjólfur hafi verið sniðgengin af bæjarstjórn við útboð á tölvuþjónustu við bæinn.

Jakob Falur Kristinsson, 4.9.2008 kl. 11:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband