Flugfélög

Mynd 178106Finnska flugfélagið Finnair hefur áhuga á að kaupa áætlun skandinavíska flugfélagsins SAS á lengri leiðum „ef þær eru til sölu,“ sagði Jukka Heinonen, forstjóri Finnair. Í síðustu viku var tilkynnt að þýska félagið Lufthansa væri að kanna möguleika á að yfirtaka SAS, sem átt hefur í fjárhagsvandræðum.

Flest flugfélög í heiminum eiga í erfiðleikum í dag, bæði vegna hins há eldsneytisverðs og fækkun farþega.  Því er spáð að miklar sameiningar flugfélaga muni eiga sér stað á næstunni og sum verði jafnvel gjaldþrota.


mbl.is Vilja kaupa lengri áætlunarleiðirnar af SAS
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

ójá og miklar breytingar eru á döfinni hjá Icelandair

Ómar Ingi, 21.9.2008 kl. 12:49

2 Smámynd: Ólöf Jóhanna Pálsdóttir

Já . það er víst ýmislegt að gerast þessa dagana en vonandi er hægt að bjarga einhverju fá falli. Það er augljóst að það verður samdráttur í flugi eins og útlitið virðist núna hlýtur fólk að halda að sér höndum.

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 21.9.2008 kl. 15:24

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það er að verða þannig ástand á Íslandi að fólk hefur ekki efni á að fljúga.

Jakob Falur Kristinsson, 22.9.2008 kl. 07:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband