Laun

Mynd 469094 Ríflega þriðjungur svarenda á aldrinum 18 til 35 ára í könnun sem Félagsvísindastofnun vann fyrir ASÍ telur eðlilegt að Íslendingar njóti betri kjara á vinnumarkaði en fólk af erlendum uppruna. Þessi niðurstaða stingur í stúf við önnur svör sem leiddu m.a. í ljós að langflestir töldu að ASÍ ætti að leggja áherslu á launa-, jafnréttis- og mannréttindamál í starfi sínu.

Þessu er ég ekki sammála, það eiga allir að fá sömu laun fyrir sömu vinnu.  Bæði íslendingar og erlent fólk.  Hinsvegar hefur borið talsvert á því að erlent fólk býður fram vinnu sína fyrir lægri laun en kjarasamningar segja til um og með tilliti til þess verður útkoman svona.


mbl.is Telja eðlilegt að útlendingar séu með lakari laun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mér er það til efs að erlent fólk bjóði fram vinnu sína fyrir lægri laun en aðrir og ef það er rétt þá hefði ég haldið að það væri atvinnurekandans mál að sjá sóma sinn í að borga fólki í það minnsta lágmarkslaun skv. kjarasamningum.  Það er ömurlegt að vita til þess að fólki finnist það sjálfsagt að einhver vinni sömu vinnu og það sjálft og þiggi fyrir mun lægri laun, sama hver á í hlut, kona eða útlendingur.

Linda Björk Jóhannsdóttir 22.9.2008 kl. 10:18

2 Smámynd: Púkinn

Ef útlendingarnir geta ekki sinnt vinnunni jafn vel og Íslendingar, t.d. vegna tjáskiptaerfiðleika, þá - já þá er eðlilegt að þeir hafi lægri laun.  Ef þeir skila sinni vinnu jafn vel og Íslendingarnir er eðlilegt að þeir hafi sömu laun.  Ef þeir skila henni betur en Íslendingarnir er eðlilegt að þeir séu betur launaðir.

Mér finnst t.d. ekkert sjálfsagt að afgreiðslumanneskja í verslun sem ekki getur svarað spurningum viðskiptavina vegna þess að hún talar ekki íslensku sé á sömu launum og einhver sem getur það.

Púkinn, 22.9.2008 kl. 11:54

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það eru mörg dæmi til um að erlent fólk býðst til að vinna fyrir launum sem eru lægri en kjarasamningar segja til um.

Jakob Falur Kristinsson, 22.9.2008 kl. 12:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband