Hraðakstur

Sex ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbrautinni í gærkvöldi og í nótt. Sá er hraðast ók mældist á 128 km/klst. þar sem hámarkshraðinn er 90 km/klst. Þá voru tveir ökumenn teknir grunaðir um ölvun við akstur í Reykjanesbæ í nótt.

Þeir eru ekki að hugsa um bensínkostnað, sem aka svona.  Flestir bílar eyða minnst á 80 km. hraða.  Ég ek oft þennan veg og verð oft undrandi þegar ég er að aka á 80-90 km. hraða, þá fljúga bílarnir fram úr mér.  Verstir eru þeir bílar sem merktir eru einhverjum fyrirtækjum, enda þurfa þeirra bílstjórar ekki að borga sektina sjálfir.  En ég er undrandi á einu að ég verð hvergi var við hraðamyndarvélar á þessum vegi.  Þegar Reykjanesbrautin er búinn með tvær aðskildar akreinar í hvora átt finnst mér rétt að skoða hvort ekki mætti hækka hámarkshraðann í 120-130 km. og hafa svo mjög há sekt ef farið yrði yfir þau mörk.   Þetta var prufað í Danmörk og niðurstaðan varð sú að þótt hámarkshraðinn væri hækkuð í 120 km. þá óku flestir á um 100 km. hraða eftir breytinguna.  Svo ætti líka að tekjutengja sektargreiðslur, því sá sem hefur milljón eða meira munar ekkert um að greiða 30 þúsund í hraðasekt. en það munar miklu hjá aðila sem er með 150 þúsund á mánuði.


mbl.is Hraðakstur á Reykjanesbraut
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband