Arðrán hvala

Nú hefur Hafrannsóknarstofnun birt niðurstöður úr vísindaveiðum á hrefnu á árunum 2006 og 2007Þar kemur fram að hrefnan étur árlega um 300 þúsund tonn af þorski og ýsu.  En útgefnar aflaheimildir í þessum sömu tegundum eru samanlagt 250 þúsund tonn.  Í það heila er áætlað að hrefnan éti um milljón tonn af hinum ýmsu fisktegundum hér við land.  Þá er ótalið allt það sem hvalurinn étur.  Nú finnst engin loðna og ætli skýringin sé ekki sú að þessar skepnur eru búnar að éta hana upp.  Hvað ætlum við að berja lengi höfðinu í steininn og neita að viðurkenna staðreyndir?  Það er ljóst að á meðan þetta ástand er þá byggjast ekki upp neinir fiskistofnar hér við land.  Ætlum við virkilega að láta þessar skepðnur éta upp allar fisktegundir, sem mun þýða að fiskveiðar við Ísland munu heyrasögunni til.  Nei það verður að bregðast við þessu með því að stórauka veiðar á þessum skepnum.  Við höfum hreinlega ekki efni á að hafa þessar skepnur bara til að sýna ferðamönnum.  Auknar veiðar á þessum dýrum munu skapa mikla vinnu og gjaldeyristekjur, því það mun vera góður markaður fyrir hvalafurðir í Japan.

Eins og staðan er í dag skipta okkar veiðar engu máli.  Við náum ekki að veiða bara það sem hrefnan étur.

Hingað og ekki lengra það er komið nóg af þessu hvalarugli.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband