Samfylkingin

 

 Mynd 492245Fylgi Samfylkingar eykst og mælist 30,5% samkvæmt könnun, sem MMR hefur gert á fylgi stjórnmálaflokkanna. Fylgi Sjálfstæðisflokks mælist 29,3% og fylgi VG 22,7%. Rétt yfir helmingur svarenda segist styðja ríkistjórnina.

 

Nú verður Samfylkingin að spila rétt úr sínum málum og lýsa yfir að sömu flokkar og nú mynda ríkisstjórn muni gera það áfram eftir kosningar.  Það verður að sjá til þess að hér verði mynduð vinstri stjórn.  Sjálfstæðisflokkurinn hefur bara gott af því að vera í stjórnarandstöðu.  Hann er búinn að vera alltof lengi í ríkisstjórn og þingmenn flokksins hafa orðið værukærir og talið sjálfsagt að flokkurinn væri alltaf í ríkisstjórn.

         Nýja vinstri stjórn eftir kosningar, takk.


mbl.is Fylgi Samfylkingar eykst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Liberal

Sem betur fer lítur út fyrir að vinstriflokkarnir missi þetta niður á lokasprettinum. 

Útspilið í dag, 100 milljónir til handa uppgjafa ljóðskáldum og listgjörningafólki á kostnað skattgreiðenda, mun vekja upp ólgu í samfélaginu.

Hversu mörgum störfum, raunverulegum störfum, væri hægt að bjarga hjá hinu opinbera fyrir sömu fjárhæð og Katrín ætlar að færa iðjuleysingjum sem kalla sig listamenn á silfurfati? 

Liberal, 6.3.2009 kl. 14:04

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Nei það gera þeir ekki heldur munu þessir tveir flokkar fá Meirihluta á Alþingi. Ég hef nú aldrei heyrt neinn með fullu viti kalla listamenn iðjuleysingja. 

Jakob Falur Kristinsson, 6.3.2009 kl. 14:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband