Steingrímur J. Sigfússon

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra styður ekki fjárfestingarsamning iðnaðarráðherra við Norðurál í Helguvík og segir hann arf frá fyrri ríkisstjórn. Hann á ekki von á því að neinn þingmaður VG greiði atkvæði með samningnum en vill ekki svara því hvort þeir greiði atkvæði gegn honum. 

Þetta viðhorf Steingríms á eftir að breytast að loknum kosningum og líka aðild að ESB, þegar ný vinstri stjórn verður mynduð.  Stjórnmálamenn tala alltaf öðruvísi fyrir kosningar en eftir.  Það segir sagan okkur.


mbl.is Steingrímur á móti Helguvík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ekki er því að treysta. VG eru líkleg til að halda fast við afturhald sitt og vera á móti atvinnuvegum.

Skúli 6.3.2009 kl. 14:39

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það hefur einn sjávarútvegsráðherra í sögu lýðveldisins fengið sérstakar þakki frá samtökum í atvinnulífinu fyrir að stuðla að góðri afkomu fyrirtækja.  En það var Lúðvík Jósepsson sem var ráðherra fyrir Alþýðubandalagið sáluga og VG er sprottið út frá þeim flokki.  Svo ég treysti VG vel til að halda rétt á málum.  Ekki er viðskilnaður frjálshyggjunnar svo þokkalegur eða hitt þó heldur.  Allt á hausnum.

Jakob Falur Kristinsson, 6.3.2009 kl. 23:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband