Allt í lagi

Mynd 484228 Líffræðilegur fjölbreytileiki á í vök að verjast á Norðurlöndum, samkvæmt niðurstöðum nýrrar skýrslu sem Norræna ráðherranefndin hefur látið gera. Samkvæmt henni hafa svæði með verðmætri náttúru minnkað á Norðurlöndum samhliða því að landbúnaður, samgöngukerfi og byggð breiða úr sér.

Er þetta ekki bara eðlileg þróun í hverju samfélagi og er örugglega ekki sérstaklega bundin við Norðurlönd.  Þetta hlýtur að vera svona um heim allan.  Ef aldrei má hreifa við neinu t.d. á Íslandi til að vernda náttúruna, verða þá ekki bara allir að flytja af landi brott svo náttúran fái að vera í friði.


mbl.is Líffræðilegur fjölbreytileiki minnkar á Norðurlöndum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Villi Asgeirsson

Eðlileg þróun? Er rányrkja þá bara allt í lagi því við, fölu aparnir viljum meira en okkur ber?

Villi Asgeirsson, 11.3.2009 kl. 11:55

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það er ekki hægt að kalla það rányrkju þótt lagðir séu vegir eða land ræktað fyrir landbúnað og byggð séu hús.  Á náttúruvernd að snúast um að ekkert sé hægt að gera.  Þetta getur vel farið saman ef rétt er á málum haldið.

Jakob Falur Kristinsson, 11.3.2009 kl. 12:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband