Umferðin

Tuttugu og níu ára Dani, sem í síðustu viku var stunginn í lungu og hjarta í rifrildi í umferðinni við annan ökumann og farþega hans, lést síðdegis í dag, að sögn lögreglunnar á Fjóni.

Mennirnir ,sem þekktust höfðu verði stoppaðir við gatnamót þegar rifrildið hófst og til að ljúka málinu óku þeir inn á bílastæði og þar endaði rifrildið með þessum hörmulegu afleiðingum.

Ekki er vitað um hvað mennirnir voru að rífast.


mbl.is Lést eftir rifrildi í umferðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

VÁ...þú ert nú meira gáfnaljósið
Endurtekur fréttina (eins og það sé einhver tilgangur með því) og getur ekki einu sinni afritað hana rétt
Hver var að stoppa þá? Ha? Kannski bara ENGINN?

Haukur 31.3.2009 kl. 11:31

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég nenni ekki að svara svona bulli,þótt það komi frá  miklu gáfnaljósi.  Ég skrifa á mína síðu það sem ég vil.  En þú skalt hugsa um þína síðu.  Að auki eru það bara lítilmenni sem skrifa undir dulnefni.  Hvað er að óttast við að hafa fullt nafn? ekkert nema að þá er kannski hægt að sjá hvað viðkomandi er vitlaus í sínum eigin skrifum.

Jakob Falur Kristinsson, 31.3.2009 kl. 16:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband