Laun

Mynd 494917 Regluleg laun á almennum vinnumarkaði voru að meðaltali 324 þúsund krónur á mánuði árið 2008. Regluleg laun fullvinnandi launamanna voru 355 þúsund krónur að meðaltali og regluleg heildarlaun, það er regluleg laun ásamt yfirvinnu, voru 393 þúsund krónur, samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni.

Ég er ansi hræddur um að margir hafi ekki þessi laun. A.m.k. ekki ég eða aðrir lífeyrisþegar og þeir hópar sem vinna á strípuðum launatöxtum þá eru launin kannski um 50% af þessari upphæð.


mbl.is Laun á almennum vinnumarkaði 393 þúsund á síðasta ári
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Púkinn

Tja, svona er nú eðli meðaltala.... einhverjir eru lægri, en aðrir eru hærri - jafnvel mun hærri.  Þannig hefur það alltaf verið og lítil ástæða til að halda að það muni breytast.

Púkinn, 6.4.2009 kl. 09:57

2 identicon

Þessar tölur eru gjörsamlega út úr korti og það virðist eftir fréttinni að dæma að all flestir íslendingar séu með  tæp 400 þúsund á mánuði í laun.  Sem er algjört rugl.  Lægstu launin eru undir 200 þúsund og þá á eftir að greiða skatta.  Það er greinilega verið að sminka eitthvað þarna.

Bryndis 6.4.2009 kl. 10:09

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það er kannski hægt að réttlæta þessar tölur með því að taka meðaltalið.  Það hefði þurft ansi marga öryrkja eða verkafólk til að vega á móti launum bankastjóranna.  Það er að segja þess hluta sem gefin var upp til skatts.

Jakob Falur Kristinsson, 6.4.2009 kl. 10:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband