SÁÁ

Amfetamínið, sem fannst í skútunni í Fáskrúðsfjarðarhöfn í... Verð á amfetamíni hefur snarhækkað samkvæmt eftirliti sem SÁÁ hefur með markaðsverði á fíkniefnum. Grammið kostar nú tæplega 7.000 krónur en í lok febrúar mánaðar var það rúmlega 5.500 krónur. Verð á kannabisefnum stendur í stað, þrátt fyrir að lögreglan hafi gert mikið af efnum upptæk.

Sko þá hjá SÁÁ, bara komnir með nýja verðskrá á amfetamíni og kannabisefnum. Þá verða neytendur bara að hætta með amfetamínið sem hefur snarhækkað og nota kannabisefni í staðinn, en þar er verð óbreytt.  Nú geta kaupendur séð ef verið er að reyna að svíkja þá með verðinu.  Það er eins gott að amfetamín er ekki inn í vísitölugrunninum, því þá myndu öll lán hækka og allt verðlag.


mbl.is Amfetamín hækkar mikið í verði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Aðgerðir lögreglu gegn kannabis koma út sem meiri sala í harðari efnum.
Staðreynd

DoctorE 6.4.2009 kl. 10:43

2 Smámynd: Zaraþústra

Það passar, ef eftirspurn eftir amfetamíni hefur aukist hratt eru fleiri að keppast um sama magnið og verðið hækkar.  Hins vegar skil ég ekki hvers vegna grasið stendur í stað, kannski vegna þess að menn hafa dregið úr neyslu kannabis meðan lögreglan er að einbeita sér að því.  Þetta hlýtur þá að teljast stórsigur hjá lögreglunni.

Zaraþústra, 6.4.2009 kl. 12:29

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Þetta er tómt rugl og vitleysa.  Það á að gera kannabisefnin lögleg og hafa af því tekur eins og ríkið gerir með aðra vímugjafa, sem eru löglegir í dag.

Jakob Falur Kristinsson, 7.4.2009 kl. 09:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband