Niðurfelling skulda

Nú hefur sú ákvörðun verið tekin að vísa til Fjármálaeftirlitsins niðurfellingu skulda stjórnenda Teymis við félagið.  Ætli það sama verði ekki gert varðandi niðurfellingu skulda fv. starfsmanna Kaupþings vegna hlutabréfakaupa á sínum tíma.
mbl.is Niðurfellingum á skuldum stjórnenda verður vísað til FME
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Finnur Bárðarson

Örugglega ekki ,því miður, þeir eiga  hauka í horni víða í stjórnkerfinu.

Finnur Bárðarson, 16.5.2009 kl. 17:01

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það er rétt Finnur.

Jakob Falur Kristinsson, 16.5.2009 kl. 17:16

3 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Hvar var fjármálaeftirlitið þegar útrásarvitleysan stóð sem hæðst? Er semsagt ekki búið að leggja það niður. Núna hentar það þjófunum að virkja það. þvílík vitleysa.

Held að væri viturlegast fyrir monopol spilara að byrja á að útskýra það áður en talað er um  "FJÁRMÁLAEFTIRLIT". þarna er verkefni fyrir Sigmund Davíð og þór Saari "hugjónabjargvætti Íslands".

Kanski ná þeir að dreifa huganum frá grænu herbergi, bindiskyldu og Jafnvel kirkusókn líka. Sleppa kanski við kvíðakast yfir því á þessum síðustu og verstu. 

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 17.5.2009 kl. 08:25

4 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Þegar útrásarvitleysan stóð sem hæðst var Fjármálaeftirlitið upptekið viðað þjóna útrásarvíkingum og öðrum sem voru að setja Ísland á hausinn.  Tek undir með þér hvað varðar Sigmund Davíð og Þór Saari.

Jakob Falur Kristinsson, 17.5.2009 kl. 15:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband