Nýr sveitarstjóri

Nú hefur Gunnólfur Lárusson verið ráðinn Sveitarstjóri í Langanesbyggð.  Hann var valinn úr hóp 41 umsækjanda, en ekki þótti taka því að boða fulltrúa minnihlutans í sveitarstjórn á fundinn sem ráðningin var ákveðin.  Oddvitinn lét nægja að biðja minnihlutann afsökunar.  Þannig virkar nú lýðræðið á norðausturhorni landsins, þar sem nær allir kjósa Steingrím J. Sigfússon og VG.  Enda ástæðulaust að boða minnihlutann þar sem meirihlutinn ræður.
mbl.is Nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

já, þetta virkar sem mjög einkennileg stjórnsýsla. En vonandi reynist sveitarstjórinn starfinu vaxinn. Ég var nú svona að velta því fyrir mér hvort að engar konur byggju í Langanesbyggð.  

Arnlín Óladóttir 17.5.2009 kl. 02:15

2 identicon

Óska Gunnólfi og fjölskildu til hamingju á nýjum stað,  ég efast ekki reynslan sem hann hefur áunnið sér sem sveitarstjóri  hér í Dalabyggð mun koma  honum vel í nýju sveitarfélagi.

Sigurbjörg Jónsdóttir 17.5.2009 kl. 13:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband