Bandaríkin og Rússland

Bandaríkin og Rússlands munu undirrita samning um hernaðarlegt samstarf þegar forseti Bandaríkjanna Barac Obama heimsækir Moskvu í næsta mánuði.

Ætla nú þessi tvö stórveldi á sviði hernaðar að sameina krafta sína í hernaði.  Og hver ætli verði óvinurinn?


mbl.is Bandaríkin og Rússland undirrita hernaðarsamkomulag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Og afhverju skrifa þeir ekki frekar undir friðarsamkomulag?!

Guðmundur Ásgeirsson, 26.6.2009 kl. 13:31

2 Smámynd: Óskar Þorkelsson

það er löngu búið a skrifa undir frið Guðmundur.. SALT 1 og 2 td.. þótt þeir hafi falið í ´sér afvopnun kjarnavopna þá eru þeir líka viljayfirlýsing um að vera ekki andstæðingar..

USA og Rússland eiga meira sameiginlegt en það sem skilur þau að.. 

væntanlegur óvinur.. kína ! 

Óskar Þorkelsson, 26.6.2009 kl. 17:37

3 identicon

Óskar mér leist svo rosalega vel á færsluna þína, alveg þangað til ég las síðustu 3 orðin.. Rússland og Kína er meiri "vinir" en Rússland og BNA. Óvinirnir leynast hvar sem er.. Norður-Kóreu, Kaninn og Rússar gætu í sameiningu reynt að koma í veg fyrir frekari átök í Afganistan, heilum helling af Afríkuhéruðum. Það er allstaðar hægt að finna vandamál sem má leysa með skotvopnum og skriðdrekum.

örn 27.6.2009 kl. 05:10

4 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Þetta er spurning um valdajafnvægi Örn.. en ekki hver er "óvinur".

Óskar Þorkelsson, 27.6.2009 kl. 08:22

5 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Er þetta ekki frekar spurning hvernig þessir aðilar skipta á milli sín áhrifasvæðum í heiminum.

Jakob Falur Kristinsson, 27.6.2009 kl. 18:04

6 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Óskar: það hefur verið skrifað undir ýmislegt í gegnum tíðina. Ég vissi alveg um SALT samningana án þess að ég sérstaklega vel að mér um þá. en ef þú vilt meina að í þeim felist samkomulag um frið þá ætti ég e.t.v. að umorða spurningu mína: Hvers vegna eru þeir þá núna að skrifa undir hernaðarsamkomulag? Væri ekki friðvænlegra í heiminum ef það væri ekki sífellt verið að gera áætlanir um hernað?

Guðmundur Ásgeirsson, 30.6.2009 kl. 16:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband