Seðlabankinn sniðgenginn

Breytingar á neyðarlögunum á síðustu metrum áður en þau tóku gildi í október fólust í því að allstaðar þar sem Seðlabankinn kom við sögu var hann strikaður út og Fjármálaeftirlitið sett í staðinn.

Þetta mun hafa verið gert vegna þess að til stóð að stofna einn banka og flytja í hann allar innistæður úr gömlu bönkunum og gefa síðan út eitt skuldabréf með forgangsveði í gömlu bönkunum.  En eitthvað virðist þessi aðferð  hafa mistekist og þess vegna voru stofnaðir þrír nýir bankar.

Aðalráðgjafi Seðlabankans við þessa aðgerð mun hafa verið fulltrúi frá bandaríska bankanum JP-Morgan.


mbl.is Seðlabanki sniðgenginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Pétur Ásbjörnsson

Skil þig ekki alveg????

Pétur Ásbjörnsson, 27.6.2009 kl. 22:27

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Þetta var gert til þess að nafn Seðlabankans kæmi hvergi fram, því með þessu átti að skilja marga erlenda kröfuhafa út í kuldanum.  Þetta þótti líka mjög siðlaus aðgerð.  Enda gerði fulltrúi JP-Morgan kröfu til þess að nafn þess banka kæmi hvergi fram.

Jakob Falur Kristinsson, 28.6.2009 kl. 14:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband