Sumarskóli með NASA

Á morgun fer af stað alþjóðlegur sumarskóli í stjörnulíffræði á vegum NASA, Nord Fjord, Háskólans á Hawaii og Háskóla Íslands.  Við skólann sem ber heitið "Vatn,ís og uppruni lífs í alheimi." kenna ýmsir af fremstu vísindamönnum heims á þessu sviði. 

Höfum við Íslendingar efni á þátttöku í þessu verkefni, á meðan fjöldi námsmanna á framhaldskólastigi fær ekki skólavist á næsta ári vegna fjárskorts.


mbl.is Sumarskóli með NASA
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Stjörnufræðivefurinn (www.stjornufraedi.is)

Kostnaður við skólann greiðist af NASA, NordForsk, Háskólanum á Hawaii, Háskóla Íslands, Matís og Prokaria. Háskóli Íslands nýtur góðs af þessu þar sem fólkið greiðir fyrir mat í Hámu, stofur eru leigðar til kennslu af Háskóla Íslands, nemendurnir greiða fyrir gistingu hér á landi, rútuferðir og fleira. Við fáum gjaldeyri hingað til lands út af honum þar sem erlendu stofnanirnar greiða sín gjöld í dollurum og evrum.

Við höfum þess vegna efni á þessu og gott betur, við græðum á þessu. Háskóli Íslands og íslenska ríkið fær meira út úr þessu en lagt er til í þetta. Það segir sig eiginlega sjálft þegar yfir 50 manna hópur kemur hingað til lands.

Svo hvet ég sem allra flesta til að mæta á fyrirlestrana á morgun.

Stjörnufræðivefurinn (www.stjornufraedi.is), 28.6.2009 kl. 15:08

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Þá er þetta hið besta mál

Jakob Falur Kristinsson, 29.6.2009 kl. 10:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband