Ekki á hliðina vegna Icesave

Fulltrúi Alþjóða Gjaldeyrissjóðsins hér á landi segir að samningurinn um Icesave, setji þjóðarbúið ekki á hliðina.  Hann segir jafnframt að þessi samningur sé ekki vegna kröfu Alþjóða Gjaldeyrissjóðsins.  Hins vegar segir hann ekki þora að spá í afleiðingar þess ef samningurinn verði felldur á Alþingi.
mbl.is Þjóðarbúið ekki á hliðina vegna Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ægir

Einmitt, þessi úrklippa þín segir mikið hvað er í gangi.

Ægir , 28.6.2009 kl. 14:47

2 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Hvers vegna segir hann ekki hverjar þessar voðalegu afleiðingar verða? Og sama má segja um Icesave-sinna í ríkisstjórninni. Hvernig væri að útskýra fyrir fólki hverjar þessar hræðilegu afleiðingar eru?? Staðreyndin er auðvitað sú að þetta er aðeins hræðsluáróður.

Hjörtur J. Guðmundsson, 28.6.2009 kl. 15:42

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég get ekki útskýr hvað er í gangi af þeirri einföldu ástæðu, að ég veit það ekki.

Jakob Falur Kristinsson, 29.6.2009 kl. 10:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband