Gefur ekki kost á sér áfram

Halldór Halldórsson bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar og oddviti Sjálfstæðismanna í Ísafjarðarbæ gefur ekki kost á sér sem oddviti og bæjarstjóraefni í næstu sveitarstjórnarkosningum vorið 2010. Halldór kynnti ákvörðun sína á fundi í bæjarmálafélagi Sjálfstæðisflokksins í Ísafjarðarbæ í gærkvöldi. Halldór segist ekki vera hættur í stjórnmálum en tíminn muni leiða í ljós hvar hann muni starfa að loknu kjörtímabilinu.

Þá vitum við hvað Halldór Halldórsson ætlar sér í framtíðinni.  En það er auðvita að komast á Alþingi fyrir Sjálfstæðismenn í Norðvesturkjördæmi.  Það kann hinsvegar að verða þungur róðu, því þar eru fyrir, Ásbjörn Óttarsson og Einar K. Guðfinnsson, sem báðir munu ekki gefa eftir sín sæti baráttulaust og að ætla að Sjálfstæðisflokkurinn fengi 3 þingmenn í þessu kjördæmi er vonlaust.


mbl.is Halldór gefur ekki kost á sér í vor
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fannar frá Rifi

það eru 4 ár að minnsta kosti þangað til að það verða nýjar alþingiskosningar. mér finnst það ólíklegt að hann sé að stefna á þing. alla vega ekki strax.

Fannar frá Rifi, 9.9.2009 kl. 10:32

2 Smámynd: Fannar frá Rifi

svo er aldrei að vita að flokkurinn fá 3 þingmenn aftur í NV kjördæmi. líkurnar eru reyndar litlar í næstu kosningum þar sem einungis verða 7 þingmenn og 1 uppbótarþingmaður.

Fannar frá Rifi, 9.9.2009 kl. 10:33

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það er mun styttra í næstu Alþingiskosningar en 4 ár.  Því að ef Ísland ætlar sér að ganga í ESB verður að breyta stjórnarskránni og það verður ekki gert nema að leggja fram breytinguna og síðan verður að kjósa og nýtt Alþingi staðfestir eða synjar breytingunni.

Jakob Falur Kristinsson, 9.9.2009 kl. 10:57

4 identicon

Hann fer bara á sjóinn :O)

Harpa Halldórsdóttir 9.9.2009 kl. 11:24

5 Smámynd: Fannar frá Rifi

já það er örugglega styttra í næstu kosningar. ég hef reyndar spáð þeim fyrir jól og í síðastalagi næsta haust. ekki útaf ESB heldur útaf því að ríkistjórnin spryngur.

Fannar frá Rifi, 9.9.2009 kl. 23:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband