Hollandshjálp

Gömul íslensk frímerki undir nafninu Hollandshjálp, sem gefin voru út árið 1953, ganga enn kaupum og sölum meðal frímerkjasafnara um allan heim.Auk þessara frímerkjaútgáfu til að hjálpa Hollandi eftir mikla flóðbylgju, var talsverðu fé safnað á vegum Rauða kross Íslands og afhent Hollendingum.

Þess vegna ættu Hollendingar að hjálpa okkur núna í okkar erfiðleikum í stað þess að auka á okkar vanda með því að pína okkur til að greiða skuld sem við eigum ekki að greiða.

Þeir eru fljótir að gleyma, þessi tréklossa-þjóð.  Þeir veittu okkur ekki einu sinni aðstoð í Vestmannaeyjargosinu, eins og fjölmargar þjóðir gerðu og var þetta eldgos mun erfiðara fyrir Ísland en þeir erfiðleikar sem Hollendingar lentu í á sínum tíma.

Þeir eiga að skammast sín.


mbl.is Hollandshjálpin enn vinsæl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Já - gott að eiga góða vini -

dágóðan fjölda manna misstum við líka við að flytja bretum fisk í heimsstyrjöldinni -

þetta eru jú vinir okkar -

Ólafur Ingi Hrólfsson, 9.9.2009 kl. 10:04

2 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

eða þannig sko

Ólafur Ingi Hrólfsson, 9.9.2009 kl. 10:05

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Já Ólafur ég gleymdi öllum sjómönnunum sem fórust við að halda lífinu í Bretum á stríðsárunum, með fiskflutningum til Bretlands.  Báðum þessum þjóðum höfum við hjálpað.  En fáum í staðin hótanir og kúgun.  Vinir eða ekki vinir er ósvarað ennþá.

Jakob Falur Kristinsson, 9.9.2009 kl. 10:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband