Selt til Norska hersins

Arctic Trucks hefur selt yfir 130 sérútbúna Landcruiser-jeppa til norska hersins sem hafa m.a. verið notaðir í Afganistan. Örn Thomsen, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir að samstarfið við norska herinn sé fyrirtækinu ótrúlega mikilvæg tekjulind.

Þetta er gott mál hjá Arctic Trucks. Þetta eru mikil tíðindi að Ísland skuli verið farið að flytja út tæki til hernaðar.  En þetta eru nú bara bílar en ekki nein alvöru hernaðartól eða tæki.


mbl.is Íslendingar selja norska hernum sérútbúna jeppa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þór Ludwig Stiefel TORA

Þarna er verið að flytja út þekkingu og verkkunnáttu. Þó dæmið sé e.t.v. ekki stórt þá er þetta mikilvægt í því að sýna fram á að Íslendingar geti vel skapað sér útflutningstekjur með þekkingu og verkviti en þurfi ekki að einblína á ál eða fisk.

Þór Ludwig Stiefel TORA, 9.9.2009 kl. 10:13

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Enda tók ég því fram að þetta væri gott mál.

Jakob Falur Kristinsson, 9.9.2009 kl. 10:21

3 identicon

Þetta er hið besta mál. Það hefur lengi verið mín skoðun að Íslendingar eigi að hefja framleiðslu á hergögnum t.d. í samstarfi við Rússa um Kalacnikoff eða hvað hann nú heitir annars. Það væri hægt að skapa þjóðarbúinu rífandi tekjur með þessu. Síðan höfum við "aggressiva" sölumenn úr bankakerfinu sem hrundi sem geta fengið vinnu við að selja þetta út um allan hinn "friðelskandi" heim.

Haraldur Aðalbjörn Haraldsson 9.9.2009 kl. 10:37

4 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ert þú Haraldur öruggur á því að sölumenn úr hinu fallna bankakerfi myndu skila tekjunum til réttra aðila.  En ekki bara hirða gróðann sjálfir.

Jakob Falur Kristinsson, 9.9.2009 kl. 10:53

5 identicon

Það er bara útfærsluatriði hvernig passað yrði upp á að allt skilaði sér í kassann. Erum við ekki reynslunni ríkari frá því í hruninu?

Haraldur Aðalbjörn Haraldsson 9.9.2009 kl. 11:13

6 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það kann að vera rétt hjá þér að loksins verði hægt að nota þessa menn í heiðarlega vinnu.

Jakob Falur Kristinsson, 9.9.2009 kl. 16:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband