Ferjan Baldur

Seinkun verður á ferðum ferjunnar Baldurs milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar í dag. Ástæðan fyrir seinkuninni er að bíða þurfti eftir því að fjaraði undan skipinu til þess að hægt væri að keyra bílum og gámum um borð.

Þetta er ekki fyrsta eða síðasta skipti sem Baldur getur ekki haldið réttri áætlun.  Það var vitað fyrirfram að Baldur hentaði ekki á þessari siglingaleið, milli lands og Eyja.  En hægt var að fá hentugri ferju á leigu erlendis frá í stað Herjólfs, en Sá valkostur reyndist dýrari en að nota Baldur.  En ég er hræddur um að ef allur sá kostnaður sem hefur stafað af töfum á siglingum Baldurs, væri reiknuð til fulls, þá hefð erlenda ferja í reynd verð ódýrari valkostur.  Þarna er verið að spara aurinn og kasta krónunni.


mbl.is Ferjuferð seinkar frá Eyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er alveg rétt hjá þér. Vestmannaeysk fyrirtæki hafa tapað mun meiri fjármunum en ríkið er að spara þarna.

Miðað við skatttekjurnar sem ríkið hefur kannski orðið af er munurinn á þessum tveim kostum ekki lengur svo mikill og miðað við óþægindin sem íbúar hafa orðið fyrir var bara barnaskapur í Möller að halda að þetta myndi ganga.

Bjarni Ben 22.9.2009 kl. 11:49

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það er auðvitað gott að spara en þegar kostnaðurinn fer að verð meiri en sparnaðurinn er það orðið rugl.

Jakob Falur Kristinsson, 22.9.2009 kl. 12:29

3 identicon

Til að sjá áætlun Baldurs verður maður að skoða flóðatöfluna.

HH 22.9.2009 kl. 13:53

4 identicon

Og athuga spá um ölduhæð við Surtsey .

Hrafn Arnarson 22.9.2009 kl. 14:11

5 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Baldur er hannaður til siglinga innanfjarða, en ekki fyrir opnu hafi.  Þar liggur vandinn.

Jakob Falur Kristinsson, 22.9.2009 kl. 16:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband