Smalað í rútu

Víða er fjallað um það í fjölmiðlum í dag að ár er liðið frá upphafi íslenska bankahrunsins. Í norska blaðinu Bergens Tidende er m.a. haft eftir Steingrími J. Sigfússyni, fjármálaráðherra, að honum sé skapi næst að reka bankastjóra gömlu bankanna, fyrrum ráðherra, fyrrum stjórnendur Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins upp í rútu og senda á verulega heitan stað.

Þetta getur aldrei ræst því þótt Steingrímur J. Sigfússon hafi kannski einhver sambönd við HELVÍTI, þá er ekki víst að  ANDSKOTINN  vildi fá þetta lið í heimsókn.


mbl.is Vill senda skúrkana burt í rútu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þarna endurspeglar Steingrímur hug þjóðarinnar til þessa glæpahyskis sem kom okkur á enn kaldari klaka en við höfum nokkru sinni búið á til þessa. Það er líka alveg ljóst að margir af þessum mönnum eiga yfir sér langa fangelsisdóma og sætu eflaust þegar inni í flestum öðrum löndum.

Stefán 28.9.2009 kl. 09:18

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Einmitt þetta er spegilmynd af afstöðu þjóðarinnar til þessa glæpamanna.  Það liðu t.d. aðeins 3 dagar frá því að upp komst um manninn í Bandaríkjunum sem ég held að heiti Murdoff, þangað til hann var komin í fangelsi og fékk síðan 150 ára fangelsisdóm.  Á Íslandi líða örugglega 3 ár eða þrjár aldir þar til einhver af þessu hyski verður sett í fangelsin og fær kannski 1,5 ára dóm, ef þeir fá þá nokkur dóm.

Jakob Falur Kristinsson, 28.9.2009 kl. 10:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband