Stór lúða

Það hljóp heldur betur á snærið hjá Magnúsi Emanúelssyni, sjómanni á Manga á Búðum, þegar hann fékk 169 kílóa lúðu á línuna i dag. Lúðan var svo þung að Magnús náði ekki að innbyrða hana heldur dró lúðuna risastóru í land.

Það er ekkert grín að fást við svona stórlúðu.  Bæði er hún þung og þegar hún kemur á yfirborðið, þá lætur hún öllum illum látum, eins þegar hún er kominn um borð í bátinn.Einn maður getur ekki innbyrt svona lúðu enda dró Magnús lúðuna til lands.  Ætli Magnús fái ekki um 40-50 þúsund fyrir lúðuna.  Ég veit um mann sem fékk svona stórlúðu á handfæri og tókst að innbyrða hana en í öllum látunum í lúðunni rann hann til og lenti undir lúðunni og gat sig hvergi hreyft.  Það voru síðan sjómenn á öðrum bát sem komu manninum til hjálpar.

Síðustu netavertíðina mína frá Ólafsvík 2003 fengum við talsvert af lúðu, en við vorum með ífæru til að setja í lúðurnar og gátum því híft þær um borð.  Það halda margir að eftir því sem lúðan er stærri þá fáist hærra verð.  En svo er ekki því þessar stórlúður eru bæði orðnar gamlar og holdið á þeim mjög gróft.  Bestu lúður til matar eru á stærðinni 5-10 kíló og fyrir þær getur oft fengist mjög hátt verð.

 


mbl.is Fékk 169 kg risalúðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband