Nýr ráðherra

Álfheiður Ingadóttir verður næsti heilbrigðisráðherra. Þetta var samþykkt á þingflokksfundi Vinstri grænna sem lauk á öðrum tímanum í nótt. „Þetta er krefjandi verkefni sem ég tek við, þegar aðstæður eru mjög óvenjulegar. En ég er ekki verkkvíðin,” sagði Álfheiður eftir fundinn.

Álfheiður er rétta manneskjan í þetta starf, þótt ég sakni Ögmundar.  Álfheiður er hörkudugleg og lætur verin tala eins og hún á kyn til.  En hún er dóttir Inga R. Helgasonar fv. forstjóra Brunabótafélagsins og hann sá algerlega um öll fjármál hjá Alþýðubandalaginu og gerði þar ótrúlega hluti.

Til hamingju Álfheiður með nýja starfið


mbl.is Álfheiður verður ráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Sæll  Jakob Álfheiður fékk starfið fyrir húsbóndahollustu við Steingrím.

Sigurður Þórðarson, 1.10.2009 kl. 08:44

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Hvaða kjaftæði er þetta hún fékk starfið vegna sinna hæfileika að halda öðru fram er bara rugl.

Jakob Falur Kristinsson, 1.10.2009 kl. 11:58

3 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

 jamm

Kolbrún Stefánsdóttir, 2.10.2009 kl. 01:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband