Prófkjör

Ákveðið var á aðalfundi fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Ísafjarðarbæ í gærkvöld að halda prófkjör til að velja á lista flokksins fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar.

Þá eru prófkjörin að fara af stað með sínu sukki og fjármálaóreiðu.  Að þeim loknum hefst síðan illindi og vinaslit.


mbl.is Ísfirskir sjálfstæðismenn í prófkjör
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingólfur H Þorleifsson

Sæll Jakob.

Ekki veit ég hvaðan þú hefur þessa slæmu reynslu af prófkjörum. Við sjálfstæðismenn hér í Ísafjarðarbæ héldum glæsilegt prófkjör fyrir síðustu kosningar þar sem kostnaði var stillt í hóf. Niðurstaðan var öflugur listi sem skilaði rúmum 45% ef ég man rétt. Vinslit urðu engin og við höfum öll unnið mjög vel saman á kjörtímabilinu.

Þannig að það er líka góð reynsla af prófkjörum.

Uppstilling hinsvegar hefur skilið eftir sig t.d. Frjálslindaflokkinn og fleiri klofningsframboð út frá Sálfstæðisflokknum.

Ingólfur H Þorleifsson, 14.10.2009 kl. 10:28

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Þessa slæmu reynslu heyrði ég hjá sjálfstæðismanni í Reykjavík sem tók þátt í prófkjöri fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar.  En ef ykkar prófkjör hefur tekist svona vel þá óska ég ykkur til hamingju með það.

Jakob Falur Kristinsson, 14.10.2009 kl. 10:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband