Íslandsbanki

Íslandslandsbanki keypti 2,6 prósenta hlut Ólafs Jóhanns Ólafssonar í Geysi Green Energy (GGE) í júlí síðastliðnum. Þetta staðfestir Ásgeir Margeirsson, forstjóri GGE.

Þarna er verið að gera Ólafi Jóhanni mikinn greiða, því hann var lengi búinn að reyna að selja þennan hlut sinn en enginn vildi kaupa.  En til hvers ætlar Íslandsbanki að eiga þennan hlut?  Bankinn neitar auðvitað að upplýsa það.  Íslenska ríkið var ekki fyrr búið að láta þennan banka hafa mikla fjármuni til að bankinn væri starfhæfur.  Þá rjúka stjórnendur bankans til og fara að fjárfesta í útrásarfyrirtæki, sem GGE er.  Var ekki komið nóg af þeirri andskotans vitleysu, nú hafa þessir stjórnendur farið rækilega yfir strikið.  Þetta er ein sönnun þess að þeir sem störfuðu áður í ábyrgðarstöðum hjá gömlu bönkunum er algerlega óhæfir til að starfa hjá þeim nýju.

Það á að reka þetta lið strax


mbl.is Íslandsbanki keypti hlut Ólafs Jóhanns í Geysi Green
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Pétursson

Tek heils huga undir þetta.  Það er með ólíkindum að þetta vanhæfa glæpahyski sem "starfar" þarna í þessum auma banka fái að bruðla svona með almanna fé.  Svo bera þessir hálfvitar fyrir sig bankaleynd  þegar þeir eru að reyna að fela eigin vanhæfni og spillingu.

Burt með þetta pakk! 

Guðmundur Pétursson, 14.10.2009 kl. 13:44

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það þarf svo sannarlega að hreinsa til, þetta bankapakk virðist vera fast í sömu hugsun og áður og telur sig komast upp með það.

Jakob Falur Kristinsson, 14.10.2009 kl. 15:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband