Kína

Nýjar hagtölur í Kína benda til þess að hagvöxtur verði meiri í ár en áætlanir ríkisstjórnarinnar gerðu ráð fyrir, eða um 8,9% í stað 8%.

Ætli ég flytji ekki bara til Kína fyrst að allt er þar á uppleið og ég er nokkuð góður í kínversku.  Annar var ég mikið að hugsa um að flytja til New York og var búinn að fá atvinnuleyfi þar og vinnu, sem leigubílstjóri, en það mun víst vera frekar hættulegt starf.  Þá er Kína betri valkostur, en þar sem svo leiðinlegt er að flytja þá verð ég sennilega áfram hér á Bíldudal og þar sem ég er búinn að kaupa tvö fiskiskip, verður nóg að gera í sambandi við útgerð þeirra.  Eins datt ég óvænt inn á vef í Bandaríkjunum, þar sem maður á bara að skoða auglýsingar og fær greitt fyrir hverja auglýsingu.  Það var talsverð vinna að setja þetta upp en núna er þetta farið að rúlla eðlilega hjá mér og peningar streyma stöðugt inn á minn bankareikning.  Í síðasta mánuði fékk ég um 9.500 dollara, sem ég geymi á sérstökum gjaldeyrisreikningi í mínum banka.


mbl.is Hagvöxtur yfir 8% í Kína í ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband