Snjómokstur

Samgönguráðherra gat ekki á Alþingi lofað því, að snjó verði mokað reglulega af vegum í Árneshreppi í vetur en sagði að þau mál verði skoðuð á næstu vikum. Vandamálið í Árneshreppi væri vegurinn þangað og erfitt sé að halda honum opnum ef eitthvað snjóar þar.

Ef vegurinn þarna er svona slæmur, væri þá ekki ráðlegt að lagfæra veginn.  Þótt fáir íbúar séu eftir í Árneshreppi, þá er þessi vegur mikið notaður af ferðafólki á sumrin.  Annars er þessi vegur ekki sá eini á Vestfjörðum, sem ekki eru mokaðir reglulega.  Bæði Dynjandi- og Hrafnseyraheiðar eru ALDREI mokaðar frá því að þær verða ófærar á haustin og þar til að fer að vora eða í maí/júní.  Þannig að ófært er allan veturinn á milli Suðurfjarða Vestfjarða og Norðursvæðisins (Ísafjarðarbæjar).  Ég þurfti fyrir stuttu að fá afrit af skattaframtali mínu fyrir síðasta ár og hafði samband við Skattstofuna í Reykjanesumdæmi og óskaði eftir að þá þetta afrit sent í pósti.  Konan, sem varð fyrir svörum sagði að það væri nú óþarfi að senda þetta í pósti.  Ég gæti einfaldlega skroppið á Skattstofuna á Ísafirði og fengið það prentað út.  Þetta væri nú ekki svo langt, en eftir að ég útskýrði fyrir henni að til að komast á Ísafjörð yrði ég að fljúga til Reykjavíkur og þaðan til Ísafjarðar, eða að fara með Baldri yfir Breiðafjörð og aka norður í Hrútafjörð og síðan yfir Steingrímsfjarðarheiði og allt Ísafjarðardjúpið til Ísafjarðar, þá loksins féllst hún á að senda þetta með pósti. 

Svona eru nú samgöngumálin hér á Vestfjörðum.


mbl.is Snjómokstur inn á milli Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband