Brandari dagsins

Á sínum tíma áttu flest hús í Garðinum sitt nafn og húsnúmer fóru ekki að koma fyrr en eftir 1960.  Þau hús, sem komin voru með síma voru tengd við símstöðina undir húsnafni en ekki númeri.  Þegar hringja átti varð að biðja símstöðina um samband við ákveðið hús.  Maður að nafni Hannes, sem var símstöðvarstjóri, og einhver hringdi á símstöðina og bað um samband við Stafnes.  Þar svaraði ung stúlka og Hannes segir;

"Stafnes mín er mamma þín heima?"

Einu sinn var hringt á símstöðina og beðið um ákveðið hús.  Hannes segir við þann, sem hringdi;

"Það svaraði einhver og sagði að enginn væri heima."


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Hahaha ..Þú átt við Sandgerði Jakob. Hannes var símstöðvarstjóri þar í tugi ára..Góður karl, kannski fljótfær ;o)

Kveðja frá Stafnesi..Ég held að það séu allir heima hér núna!!!

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 25.10.2009 kl. 11:28

2 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Ég hafði nú líka heyrt eitthvað svipað!! En skondið er að tengdasonur minn heitir Hannes og er barnabarn Hannesar. Og hann er sko yfirvegaður og ekki með þessi fljótfærnisgen..Í þessu seinna dæmi held ég að það hafi svarað lítill krakki en Hannes vitað að leitað var að fullorðnum einstaklingi..Komið svona út!!!

En gaman að þessu..Hafðu það gott fyrir vestan vinur.

Silla.

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 25.10.2009 kl. 11:46

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Þakka þér fyrir Sigurbjörg, það liggja víða tengingar ef vel er gáð.

Jakob Falur Kristinsson, 26.10.2009 kl. 12:09

4 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Já magnað hvað við erum öll tengd Íslendingar..nú bíð ég eftir brandara dagsins!!Kíki alltaf á síðuna þína!

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 26.10.2009 kl. 13:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband