Icesave

Hagvaxtarfyrirvara sem Alþingi setti við Icesave-samninga hefur verið breytt í nýju samkomulagi ríkisins við Breta og Hollendinga. Þessi breyting getur haft í för með sér umtalsvert meiri greiðslubyrði en Alþingi hafði gert ráð fyrir.

Það er alveg ljóst að engu verður breytt varðandi þennan samning nema með samþykki Alþingis.  Annars er þetta mál farið að fara svo í mínar fínustu taugar að ég grátbið þingmenn að klára nú málið í eitt skipti fyrir öll, svo hægt sé að snúa sér að öðrum verkefnum sem bíða.


mbl.is Breyttur hagvaxtarfyrirvari getur valdið hærri greiðslum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Reynir Jóhannesson

Hættum þessu þreytutali um að nú þurfi að snúa sér að öðrum verkefnum! Er ekki hægt að slaka aðeins á í Icesave málinu og afgreiða nokkur mál í einu?

Til dæmis virðist ríkisstjórnin geta farið í mikla vinnu vegna ESB aðildarumsóknar. Hvernig væri nú að hætta við ESB umsókn og leggja vinnu í Icesave og skuldamál heimila og fyrirtækja?

Icesave málið er einfaldlega of mikilvægt til þess að við nennum að hlusta á svona "þreytutal".

Reynir Jóhannesson, 27.10.2009 kl. 10:26

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég tek nú einmitt fram að þetta Icesave-mál sé farið að fara mikið í taugarnar á mér.

Jakob Falur Kristinsson, 27.10.2009 kl. 11:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband