Allt fullt

Lögreglan á Suðurnesjum varð að fá inni fyrir fanga í fangageymslu í Grindavík í nótt vegna þess að ekki var pláss í fangahúsinu í Reykjanesbæ. Þar eru nú tveir í gæsluvarðhaldi og aðrir voru settir inn fyrir fyllerí og fleira.

Er nú svo komið að lögreglan þarf að fá leigt pláss fyrir fanga.  Það væri sennilega góður bissness að byggja fangelsi og leigja ríkinu klefa eftir þörfum hverju sinni.  Það er ákveðið lögmál í öllum viðskiptum að sé eftirspurn eftir vöru eða þjónustu, þá mun alltaf koma einhver til að anna þeirri eftirspurn.


mbl.is Fangahúsið fylltist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Helgason

Þarf ekki að fara að fækka í liðinu, úr tveimur í einn,

annars varð ég fyrir lífreiðslu í morgun, þar sem ég fékk heimsókn af tveimur vopnuðum löggum, báru báðir skammbyssur sér við hlið, hafði sést á N1 með leikfanga byssu í vasanum, við að kaupa pulsu.

er þetta nú ekki að verða hálf hallærislegt eða er þetta allt að verða vitlaust .

Sigurður Helgason, 27.10.2009 kl. 12:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband