Nýr framkvæmdastjóri

Borgarahreyfingin hefur ráðið Tryggva Haraldsson, 28 ára stjórnmálafræðing sem framkvæmdastjóra. Tryggvi verður þar með fyrsti formlegi starfsmaður Borgarahreyfingarinnar. Borgarahreyfingin fékk fjóra menn kjörna á þing í síðustu alþingiskosningum en þeir hafa allir yfirgefið Borgarahreyfinguna. Þrír þeirra eru nú þingmenn Hreyfingarinnar en einn er utan flokka.

Þetta virðist vera eftirsótt starf, þar sem umsækjendur voru 9, en verst er þó að allir þeir 4 þingmenn, sem Borgarahreyfingarinnar, hafa yfirgefið flokkinn. 3 eru í Hreyfingunni og einn er utan flokka.  Þetta mun þýða það að þótt Borgarahreyfingin bjóði fram aftur mun fólk ekki treysta því að ef flokkurinn nær manni á þing, hvort hann muni starfa þar fyrir þá sem kjósa þessa Borgarahreyfingu.


mbl.is Ráðinn framkvæmdastjóri Borgarahreyfingarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björn Halldór Björnsson

Það er margt sem Borgarahreyfingin er fær um að gera þótt hún sé ekki með þingmann.

T.d. er BH komin með húsnæði -sem hver sem er má sækja og mynda sína vinnuhópa óháð flokks-skýrteini.

Þarna er verkfæri sem gæti spilað inn í mótun samfélagsins ef notað er rétt. Hvort sem næst að endurheimta traust fyrir næstu kosningar eður ei.

Björn Halldór Björnsson, 9.12.2009 kl. 11:59

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég hef ekkert á móti Borgarahreyfingunni, nema síður sé.  En þegar traustið er farið er frekar lítið eftir hjá stjórnmálaafli.  Var annars ekki eitt af stefnumálum Borgarahreyfingarinnar að hún yrði lögð niður um leið og hún fengi fólk kjörið á Alþingi?

Jakob Falur Kristinsson, 10.12.2009 kl. 11:02

3 Smámynd: Sigurður Hrellir

Sæll Jakob, einhver misskilningur er hér á ferðinni því að stefnuskrá BH endar á:

"Borgarahreyfingin leggur sig niður og hættir störfum þegar þessum markmiðum hefur verið náð eða augljóst er að þeim verður ekki náð."

Það er augljóst að flestum markmiðum hennar hefur enn ekki verið náð en við höfum síður en svo gefið upp alla von ennþá.

Sigurður Hrellir, 10.12.2009 kl. 14:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband