Íslenskt ál

Aðeins má nota ál frá Íslandi í framkvæmdum, sem standa yfir í borgarhverfinu Masdar í Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Ástæðan er sú, að íslenska álið framleitt með raforku úr endurnýjanlegum orkugjöfum en Masdar á að verða algerlega umhverfisvæn og laus við losun gróðurhúsalofttegunda.

Þetta er rothögg á þá sem eru að berjast á móti álverum á Íslandi.  En sennilegasta skýringin er þó samt sú að fáar þjóðir vilja selja þessu ríki eitt né neitt, vegna þess að þetta Masdar-ævintýri er gjaldþrota og því mun álið sem fer frá Íslandi þangað aldrei verða greitt.


mbl.is Aðeins ál frá Íslandi í Masdar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þetta er samt kannski vísbending um það sem koma skal. Við þekkjum vel fyrirbærið "lífrænt ræktuð matvæli" sem fólk með umhverfisvitund er tilbúið að borga hærra verð fyrir en þau sem eru fjöldaframleidd með skordýraeitri og sterum o.fl. Ætli samkeppnisforskot íslenskra álframleiðenda muni í framtíðinni felast í því að geta boðið kaupendum upp á "umhverfisvottað" ál? Ef svo er, þá þarf nú aldeilis að fara að endurskoða verðlagningu á öllu þessu "hreina" rafmagni til stóriðjunnar!

Guðmundur Ásgeirsson, 9.12.2009 kl. 12:34

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Sammála.

Jakob Falur Kristinsson, 10.12.2009 kl. 09:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband