Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2007
18.11.2007 | 15:47
Rán
Þrír menn vopnaði kylfu og exi frömdu rán í söluturni í Reykjavík skömmu fyrir hádegi í dag, samkvæmt upplýsingum lögreglu. Þeir komu inn í Sunnubúðina við Mávahlíð og réðust að starfsmanni, rændu peningum og tóbaki og hlupu síðan á brott.
Dæmigert fyrir dópliðið, sem er löngu orðið kolruglað og getur ekki endað öðruvísi en að því kemur að einhver verður drepinn í öllum þessum ránum.
![]() |
Vopnað rán í söluturni í Reykjavík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.11.2007 | 15:41
Hrefnan
Tólf tonna hrefna sem synti um 1.600 km leið upp Amazon í Brasilíu hefur nú strandað á sandrifi í þverá fljótsins í annað sinn, að því er brasilískir fjölmiðlar greina frá í dag. Leit að hvalnum hafði verið hætt eftir að hann var losaður af rifinu í síðustu viku og hvarf sjónum.
Til hver eru menn að losa þennan hval af rifinu? Hann vill greinilega ekki vera í hafinu, væri ekki einfaldast að skjóta skepnuna og nýta af henni kjötið og hætta þessari vitleysu.
![]() |
Hrefnan aftur strönduð á sandrifi í Amazon |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.11.2007 | 15:38
Sættir
Nú hefur borgarráð Reykjavíkur samþykkt að láta ógilda samruna REI og Geysis Green Energy. Nú á REI einungis að vera fjárfestingarfélag í eigu Orkuveitu Reykjavíkur og mun vera ætlunin að bjóða Geysir Green allar eignir REI til kaups. Jafnframt þessu hefur hefur borgarráð beint þeim tilmælum til stjórnar Orkuveitunnar um að reyna að ná sáttum við Svandísi Svavarsdóttur í máli því sem hún höfðaði gegn Orkuveitunni til að fá sameiningarfund REI og Geysis Green dæmdan ólöglegan og hefur Hjörleifi Kvaran forstjóra OR verið falið að leita eftir sáttum í málinu við Svandísi.
Alltaf tekur þetta REI-mál á sig fleiri undarlegar myndir. Svandís Svavarsdóttir samþykkir sem sagt í borgarráði að OR leyti eftir sáttum við hana sjálfa. Ég verð nú að viðurkenna að nú er ég algerlega hættur að skilja þetta mál. Svandís er fyrst búinn að taka þátt í að ógilda samruna REI og Geysis Green og mætti þá ætla að hann væri úr sögunni. Nei þá þarf forstjóri OR að leita eftir sáttum við Svandísi í máli sem snýst um sameiningu þessara fyrirtækja, sem hún sjálf er búinn að taka þátt í að ógilda. Væri ekki einfaldast fyrir Svandísi að draga kæruna til baka og málið væri úr sögunni. Hvað á þessi skrípaleikur að þýða? Verður kannski næst sem upp kemur að Svandís neitar öllum sáttum? Hvað gerir borgarráð þá? Þetta er að verða einskonar spennuþáttur, nýtt efni í hverri viku.
18.11.2007 | 15:15
Vúdú-hagfræðin
Nú er staddur hér á landi hinn frægi bandaríski hagfræðingur Arthur B. Laffer sem á sínum tíma var einn helsti ráðgjafi Regans þegar hann var forseti Bandaríkjanna. Þessi hagfræðingur er með nokkuð nýja sýn á hagfræðina, sem í heimalandi hans er kölluð Vúdú-hagfræði. Þessum manni til halds og traust hér á landi hefur auðvitað verið hinn íslenski Vúdú-maður Hannes Hólmsteinn Gissurarson. Þessi hagfræðingur á varla til orð, til að lýsa því hvað allt sé dásamlegt hér á landi og hér séu menn að fara eftir hans speki og tekur Árni Matthisen, fjármálaráðherra undir það í blaðaviðtali. Kenning þessa manns gengur út á það að eftir því sem skattar séu lækkaðir meira þá komi inn meiri skatttekjur og viðskiptahalli sé af hinu góða og því meiri sem hann er sé það þeim mun betra og þar standi íslendingar sig mjög vel með sinn gífurlega viðskiptahalla sem Davíð Oddsson var að fullyrða fyrir stutt að væri farinn að nálgast hættumörk. Rök Later fyrir því að viðskiptahalli sé til bóta eru þau, að þá séu að koma meiri peningar inn í landið en fari út og þannig þenjist hagkerfið út og allar framkvæmdir aukist. Hann leggur líka mesta áherslu á að lækka skuli skatta hinna tekjuháu og fyrirtækja þótt auðvitað kunni það eitthvað bæta kjör lágtekju hópa.
Ég er nú ekki menntaður hagfræðingur en hef samt lært þó nokkuð í þeim fræðum og get því verið sammála þessum manni að lækkun skatta muni skila sér í auknum tekjum þar sem fleiri muni reyna að auka tekjur sínar og auknar ráðstöfunartekjur gefa auðvitað meira til ríkisins í formi neysluskatta. En ég hefði nú haldið að ekki væri rétt að byrja á hátekjumönnum sem varla vita aura sinna tal og auknar ráðstöfunartekjur þeirra fara ekki í neyslu. Því það eru viss takmörk á því hvað ein fjölskylda kemst yfir að eyða miklu í hverjum mánuði. Hins vegar munu auknar ráðstöfunartekjur þeirra sem hafa lægstu launin og meðallaunin fara að mestu í neyslu.
Hvað varðar viðskiptahallann þá hef ég nú talið að sama lögmál gilti um þjóðarbúið og einstaklingana að ekki gæti gengið árum saman að eyða alltaf verulega umfram tekjur, því einhver tímann kemur að það þarf að borga reikninginn. Ef þessi kenning um aukna þenslu er rétt hjá Laffer, þá höfum við íslendingar verið á kolrangri leið með því að vera alltaf að hækka vexti til að draga úr þenslu og ná einhverju verðbólgumarkmiði. Við ættum í hvelli að snarlækka vexti um leið og við lækkum skatta og setja þensluna á fulla ferð aftur, byggja álver og framkvæma eins mikið og við getum og vera ekkert að hugsa um einhver viðskiptahalla, hann mun auðvitað aukast og því meira, því betra. Nú er tækifærið að gefa allt í botn.
Annars væri nú best ef Hannes Hólmsteinn færi með þennan Vúdú-vin sinn í heimsókn til Davíðs Oddsonar í Seðlabankann og Davíð gæfi grænt ljós á að auka þensluna. Þá yrði sko gaman að lifa því auðvitað færu bankarnir að lána fólki í gríð og erg og hægt væri að hafa húsnæðislánin 150% svo fólk ætti ekki aðeins pening fyrir íbúð heldur einnig fyrir nýjum húsgögnum, nýjum bílum, utanlandsferðum og öllu því sem fólk langaði í. Þannig að kenningar Péturs H. Blöndal alþm. um að fólk eigi að temja sér sparnað er einfaldlega ekki rétt. Það er eyðslan sem skiptir mestu máli í að drífa áfram íslenska hagkerfið. Ég hrífst svo af þessari Vúdú-speki að ég ætla hér og nú að færa Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni mínar þakki fyrir að hafa fengið þennan mann til að koma til Íslands og bjarga okkur undan öllu vaxtaokrinu og þeim sem hafa verið að hræða okkur við að taka lán.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.11.2007 | 14:15
Svartir kettir
Gærdagurinn var "dagur svarta kattarins" á Ítalíu að frumkvæði dýraverndarsamtaka, sem vildu með átakinu reyna að koma í veg fyrir að svartir kettir séu drepnir vegna þeirrar hjátrúar að þeim fylgi ólán. Slík hjátrú er útbreidd, en óvíða er hún jafn sterk og á Ítalíu, þar sem þúsundir svartra katta eru aflífaðir á ári hverju af þessum sökum.
Þessi hjátrú á sér upphaf á miðöldum og ætti ekki að þekkjast í dag. Ég hef sjálfur átt marga ketti og þar af tvo svarta og ekki var ég neitt var við mun á köttunum eftir því hvernig þeir voru á litinn. Síðasti kötturinn sem ég átt var allur svartur, hvergi neinn annar litur og er hann með þeim gæfari og sá skemmtilegasti, sem ég hef átt. Þannig að ég blæs á alla svona fordóma því þetta er miðaldar hugsunarháttur, sem ég tek ekki mark á. Þetta er svona álíka viðhorf og var á sínum tíma hjá hvítum mönnum í Bandaríkjunum gagnvart svörtu fólki.
![]() |
Reynt að bjarga svörtum köttum á Ítalíu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.11.2007 | 18:29
FL Croup
Ætla MÁ að verðmæti skráðra eigna FL Group hafi lækkað um í kringum 20 milljarða króna það sem af er fjórða ársfjórðungi en ekki um 25 milljarða eins og sagði í frétt á vef Berlingske Tidende og greint var frá í Morgunblaðinu í gær.
Nú er tap ekki lengur tap, heldur óinnleyst tap. Hverskonar rugl er þetta og hver á að blekkja? Ég hefði haldið að tap væri alltaf tap. Ég er kannski svona heimskur en einhvern veginn finnst mér að ef fyrirtæki tapaði þá væri það að tapa peningum eða öðrum eignum og það geti ekki verið hægt að ákveða það hvort fyrirtækið innleysir tapið eða ekki. Er virkilega búið að rugla og þvæla svo í uppgjörsaðferðum að hægt er að vera með óinnleyst tap í uppgjörum og ef svo er þá innleysir enginn stjórnandi sem er með fullu viti slíkt tap. Er málið einfaldlega ekki það að viðkomandi fyrirtæki á eftir að borga tapið og svo ég noti nú fína málfarið og tapið er ekki innleyst, þá hljóta einhverjir aðrir að þurfa að greiða fyrir það eða horfa á eftir hagnaði í viðskiptum hverfa. Því það sem einn græðir eru einhverjir aðrir sem tapa sömu upphæð og öfugt. Það lögmál breytist aldrei.
![]() |
Óinnleyst tap FL Group ofmetið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.11.2007 | 17:32
Straumlaust
Straumlaust er á Innri-Akraneslínu í Hvalfirði, en rafmagn fór af línunni um kl 13 þegar grafa fór í línuna. Vinnuflokkur Rarik frá Borgarnesi vinnur nú að viðgerð og er áætlað að rafmagn komist aftur á eftir 1-2 klst, segir í tilkynningu frá dreifisviði RARIK Vesturlandi.
Svona mistök eiga ekki að geta átt sér stað. Hvernig getur grafa farið í loftlínu nema fyrir algert kæruleysi. Ber enginn ábyrgð á svona hlutum er bara nóg að segja afsakið, rafmagnið kemur aftur.
![]() |
Straumlaust á Innri-Akraneslínu í Hvalfirði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.11.2007 | 17:25
Ferskur fiskur
Sjávarútvegsfyrirtæki á Nýfundnalandi og Labrador hafa komið sér upp nýrri leið inn á Evrópumarkað með fisk. Kanadískir fjölmiðlar hafa eftir Tom Rideout, sjávarútvegsráðherra Nýfundnalands, að einkafyrirtækið Fly Fresh Freight Inc. muni hefja flug með ferskar sjávarafurðir frá Gander til Íslands í dag.
Ætlum við nú að láta Kanadamenn nota okkur til að koma ferskum fiski bakdyramegin á markaði í ESB og keppa við okkar eigin útflutning á ferskum afurðum um leið og þeir nýta okkar tollfrelsi á þessum mörkuðum. Hverskonar andskotans vitleysa er þetta. Við eigum ekki að líða þetta og ef Kanadamenn vilja koma ferskum fiski á Evrópumarkaði eigum við ekki að aðstoða þá í að verðfella okkar vöru. Með þessu erum við í raun að aðstoða þá við að vera í samkeppni við okkur. Er þetta nú ekki fulllangt gengið í allri vitleysunni?
![]() |
Fiskur fluttur frá Kanada til Íslands |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.11.2007 | 17:12
Hrefna
Tæplega sex metra löng hrefna hefur sést djúpt í regnskógum Brasilíu, rúmlega 1.600 kílómetra frá strönd Atlantshafsins. Hvalurinn strandaði fyrr í vikunni á sandrifi en dýralæknar og heimamenn hjálpuðust að við að losa hann, og hefur hann ekki sést síðan. Talið er að hrefnan sé um tólf tonn.
Ætlar svo einhver að halda því fram að hrefnuveiðar séu við það að útrýma stofninum, þegar þær eru farnar að fara inní frumskóga og ætli hún fari ekki bráðum að sjást upp í trjám.
![]() |
Tólf tonna hrefna í Amazon-regnskóginum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.11.2007 | 17:07
Hvalveiðar
Japanski hvalveiðiflotinn heldur í nótt af stað frá Shimonoseki í Japan til Suðurhafa þar sem áformað er að veiða yfir 1000 hvali í vísindaskyni, þar á meðal 50 hnúfubaka, sem hafa ekki verið veiddir frá því á sjöunda áratug síðustu aldar. Verksmiðjuskipið Nisshin Maju, sem laskaðist í eldi á síðustu vertíð, hefur nú verið lagfært og fer með veiðiflotanum.
Gott framtak hjá Japönum og hlusta ekkert á einhverja vitleysinga í umhverfissamtökum. Þetta eigum við íslendingar að gera líka. Það er ekki nóg með að þessi ofverndun hvað sé að útrýma mörgum fiskistofnum heimsins heldur eru þessir verndarsinnar farnir að berjast gegn fiskveiðum almennt. Hvað á fólk að borða sem byggir þennan heim ef allt á að vera friðað. Eins má benda á alla loftlagsmengunina frá hvölum sem ekki er neitt smáræði sem þessar skepnur blása frá sér.
Verður ekki næst að berjast gegn því að fólk borði kjöt?
![]() |
Japanar á leið á hnúfubakaveiðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
Eldri færslur
2010
2009
2008
2007
2006
Tenglar
Ýmsir tenglar
- Arnfirðingur
- Bíldudalur
- Bolungarvík
- Bæjarins besta á Ísafirði
- Guðrún Rebekka Jakobsdóttir Edinborg
- Falið vald
- Flateyri
- Frjálslyndi flokkurinn
- Ísafjörður
- Júdit Krista Jakobsdóttir, Bíldudal
- Kristinn Ásgeirsson, Danmörku
- Kristinn H. Gunnarsson
- KVÓTASVINDLIÐ MITT
- Mats Wibe Lund
- Óvinir Ísland
- Skipamyndir Þorgeir Baldursson ljósmyndari
- Suðureyri
- Strandabyggð
- Súðavík
- Tálknafjörður
- Tíðis-fréttavefur
- Vesturbyggð
- VÍSIR.IS
SKIPAMYNDIR
- Fiskistofa Ýmsar upplýsingar
- Gísli Reyisson Aflafréttir
- Hafþór Hreiðarsson Skipamyndir
- Ragnar í Grindavík Skipamyndir
- Skip.is Ýmsar upplýsingar
- Þorgeir Baldursson SKIPAMYNDIR
- http://
Bloggvinir
-
Adda bloggar
-
Ágúst H Bjarnason
-
Albertína Friðbjörg
-
Alma Jenny Guðmundsdóttir
-
Anna
-
Anna Guðný
-
Anna Heiða Stefánsdóttir
-
Anna Pálsdóttir! :)
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Apamaðurinn
-
Arinbjörn Kúld
-
Ásgerður Jóna Flosadóttir
-
Arnlaugur Helgason
-
Arnþór Helgason
-
Ársæll Níelsson
-
Ásdís Rán
-
Ásgeir Jóhann Bragason
-
Ásgeir Kristinn Lárusson
-
Ásgeir Sveinsson
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Baldur Smári Einarsson
-
Baldvin Jónsson
-
Bara Steini
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Birna M
-
Bjarney Bjarnadóttir
-
Bjarni Baukur
-
Bjarni Harðarson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Bjarni Kjartansson
-
Baldur Hermannsson
-
Baldur Kristjánsson
-
Bjarki Þór Guðmundsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Björgvin S. Ármannsson
-
Björgvin Guðmundsson
-
Björn Leví Gunnarsson
-
Björn Finnbogason
-
Bragi Sigurður Guðmundsson
-
Bragi Sigurðsson
-
Hommalega Kvennagullið
-
Bwahahaha...
-
Davíð Pálsson
-
Davíð S. Sigurðsson
-
Didda
-
Dunni
-
Edda Agnarsdóttir
-
Edda Sveinsdóttir
-
Eggert Þór Aðalsteinsson
-
Egill Jón Kristjánsson
-
egvania
-
Einar B Bragason
-
Einar Kristinn Guðfinnsson
-
Einar Sveinbjörnsson
-
Eiríkur Sjóberg
-
Elinóra Inga Sigurðardóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Emil Örn Kristjánsson
-
J. Einar Valur Bjarnason Maack
-
Elín Margrét Guðmundsdóttir
-
Evrópusamtökin, www.evropa.is
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Eyjólfur Ingvi Bjarnason
-
FF
-
FLÓTTAMAÐURINN
-
Faktor
-
Fannar frá Rifi
-
Finnur Bárðarson
-
Fjarki
-
Friðrik Höskuldsson
-
Frjálshyggjufélagið
-
Fríða Björk Einarsdóttir
-
Georg Birgisson
-
Gestur Guðjónsson
-
Grétar Pétur Geirsson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Gunnar Þór Ólafsson
-
Gunnlaugur Halldór Halldórsson
-
Guðjón Heiðar Valgarðsson
-
Guðjón Sigþór Jensson
-
Guðjón Ó.
-
Guðmundur St Ragnarsson
-
Guðmundur Zebitz
-
Guðni Gíslason
-
gudni.is
-
Guðrún Hafdís Bjarnadóttir
-
Guðrún Jónína Eiríksdóttir
-
Guðrún Magnea Helgadóttir
-
Guðrún María Óskarsdóttir.
-
Guðrún Una Jónsdóttir
-
Guðrún Helgadóttir
-
Guðrún S Hilmisdóttir
-
Guðrún Þóra Hjaltadóttir
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Gísli Sigurðsson
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Haffi
-
Hafrún Kristjánsdóttir
-
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
-
Halla Rut
-
Halldór Sigurðsson
-
Halldór Örn Egilson
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Hallur Magnússon
-
Haraldur Bjarnason
-
Haraldur Davíðsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Heimir Lárusson Fjeldsted
-
Heiður Helgadóttir
-
Helga Dóra
-
Helga Sigrún Harðardóttir
-
Helga Þórðardóttir
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Himmalingur
-
Hilmar Sæberg Ásgeirsson
-
hilmar jónsson
-
Hjálmtýr V Heiðdal
-
Hjalti Sigurðarson
-
Hjartagullin mín
-
Hinrik Þór Svavarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Hlekkur
-
Huld S. Ringsted
-
Hólmdís Hjartardóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Hrannar Björn Arnarsson
-
hreinsamviska
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Hörður Halldórsson
-
Hörður Hilmarsson
-
Hvíti Riddarinn
-
Ingunn Jóna Gísladóttir
-
Ingvar Valgeirsson
-
Jakob Kristinsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Jens Guð
-
Jens Sigurjónsson
-
Jóhannes Jónsson
-
Jóhanna Fríða Dalkvist
-
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir
-
Jóhannes Ragnarsson
-
Jóhannes Þór Skúlason
-
Jón Baldur Lorange
-
Jón Halldór Eiríksson
-
Jón Kristófer Arnarson
-
Jón Finnbogason
-
Jón Ingi Cæsarsson
-
Jón Snæbjörnsson
-
Jón Ólafur Vilhjálmsson
-
Jónína Benediktsdóttir
-
Kama Sutra
-
Karl Tómasson
-
Karl V. Matthíasson
-
Katrín
-
Kjarri thaiiceland
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Konráð Ragnarsson
-
Kristinn Sigurjónsson
-
Kristinn Theódórsson
-
Kristján Pétursson
-
Magnús Helgi Björgvinsson
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Lilja Skaftadóttir
-
Lovísa
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Lýður Árnason
-
Maddý
-
Magnús Þór Friðriksson
-
Margrét Sigurðardóttir
-
Marinó Hafnfjörð Þórisson
-
Magnús H Traustason
-
Marinó Már Marinósson
-
Marzellíus Sveinbjörnsson
-
Morgunblaðið
-
Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar
-
Nanna Katrín Kristjánsdóttir
-
Natan Kolbeinsson
-
Níels A. Ársælsson.
-
Ólafía Margrét Guðmundsdóttir
-
Ólafur Þór Gunnarsson
-
Ólafur Tryggvason Þorsteinsson
-
Ólafur Ragnarsson
-
Ólafur Ingi Hrólfsson
-
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
-
Ólafur Tryggvason
-
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir
-
Ólöf de Bont
-
Óskar Helgi Helgason
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Paul Nikolov
-
Páll Höskuldsson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Pjetur Stefánsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
percy B. Stefánsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Borgþórs
-
Ragnheiður Ólafsdóttir
-
Ragnhildur Jónsdóttir
-
Ragnhildur Sverrisdóttir
-
Regína R
-
Ruth
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Rúna Guðfinnsdóttir
-
Rögnvaldur Þór Óskarsson
-
Samtök Fullveldissinna
-
Salvör Kristjana Gissurardóttir
-
Samtök sjálfstæðra í sjávarútvegi
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
-
Sigríður Hafdís Þórðardóttir
-
Sigríður Inga Sigurjónsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurjón Þórðarson
-
Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir
-
Sigurður Haukur Gíslason
-
Sigurður Jón Hreinsson
-
Sigurður Jónsson
-
Sigurður Þórðarson
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Snorri Bergz
-
Sigurjón Sveinsson
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Þorsteinn Briem
-
Steinþór Ásgeirsson
-
Svartagall
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sævar Einarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sólveig Aradóttir
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
TARA
-
Tiger
-
Tinna Eik Rakelardóttir
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Valbjörn Júlíus Þorláksson
-
Valdimar Leó Friðriksson
-
Valan
-
Vefritid
-
Vestfirðir
-
Viggó H. Viggósson
-
Vilborg Auðuns
-
Þórbergur Torfason
-
ÞJÓÐARSÁLIN
-
Þórhallur Heimisson
-
Þórhallur Pálsson
-
Þórarinn Þ Gíslason
-
Þórður Björn Sigurðsson
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Þórir Kjartansson
-
Þórólfur S. Finnsson
-
Þór Jóhannesson
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Jón V. Þorsteinsson
-
Sigurður Kári Kristjánsson
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 802076
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu færslur
- 24.1.2010 Jakob Kristinsson er látinn.
- 21.1.2010 Spakmæli dagsins
- 21.1.2010 Obama
- 21.1.2010 Icesave
- 21.1.2010 Mótmælendur ákærðir
- 21.1.2010 Norwegian
- 21.1.2010 Kaninn og RÚV
- 21.1.2010 Látinn laus
- 21.1.2010 Kína
- 21.1.2010 Hvað vill félagsmálaráðherra?
198 dagar til jóla
Nýjustu færslurnar
- Amerísk fasistaskyggni fyrir Grindavík?
- Greta gyðingahatari.
- Einföld útskýring Jóns Steinars - og upprifjun Jóns Bjarnasonar á sögulegum staðreyndum
- Viðurkennt í greinargerðinni
- Maí sem sumarmánuður?
- Vertíðin, strandveiðar og veiðigjöldin
- World Council for Health (WCH) styður kröfu um tafarlausa fjarlægingu mRNA-bóluefna
- MIKILL OG STERKUR VILJI TIL LANDRÁÐA HJÁ SAMFYLKINGU OG VIÐREISN...
- Maður ætti að halda uppá upphaflegu heiðnu hátíðirnar og finna þær
- Breytt umræða í útlendingamálum