Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008

Ísrael

Menn með myndir af Mughnieh á Palestínutorginu í Teheran,...Byltingarverðirnir í Íran, úrvalssveitir íranska hersins, spá því að áður en langt um líður muni liðsmenn Hezbollah, samtaka herskárra sjíta í Líbanon, leggja Ísrael í rúst, að því er Fars-fréttastofan greindi frá í dag.

Hvað eru þessir vitleysingar að rífa kjaft, gera þeir sér ekki grein fyrir herstyrk Ísrael, sem mun hernema þessi lönd ef á þá verður ráðist.  Jafnframt er Íran að ögra Bush að ráðast inn í Íran eins og hugur hans stendur til.  Hversvegna í ósköpunum er verið að gefa honum tækifæri á að láta verða af innrás.  Er orðið FRIÐUR ekki til hjá þessu andskotans hyski.


mbl.is Byltingarverðirnir spá því að Ísrael verði lagt í rúst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aumingja Vilhjálmur

Nú er svo komið að ég er farinn að vorkenna Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni, honum er kennt um allan vandræðaganginn í Sjálfstæðisflokknum.  Samherjar hans í borgarstjórn vilja ekki styðja við bakið á honum í erfiðu máli.  Svo kemur Geir H. Haarde, forsætisráðherra í "Silfur Egils"  í gær og segir að Viðhjálmur hafi aðeins tæpa viku til að gera upp hug sinn og ekki treystir Geir sér heldur til að lýsa yfir afdráttarlausum stuðningi við Vilhjálm og vill meina að fylgishrun flokksins undanfarið sé Vilhjálmi að kenna og Bjarni Benidiktsson alþingismaður segir í útvarpinu að Vilhjálmur eigi að taka ákvörðun strax því þetta sé að skaða flokkinn.  Mér finnst að þarna sé verið að hengja bakara fyrir smið, dettur Gerir H. Haarde virkilega í hug að hann sem formaður flokksins beri enga ábyrgð á fylgistapinu núna undanfarið.  Það sem Geir og fleiri geta ekki skilið að Samfylkingin er mun vinsælli í þessari ríkisstjórn en Sjálfstæðisflokkurinn og er að soga til sín fylgi frá þeim.  Þetta er að vísu alveg nýtt hjá Sjálfstæðisflokknum, því fram að þessu hafa allir flokkar sem hafa farið með þeim í ríkisstjórn tapað fylgi.  Ég ætla hér með að skora á Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson að taka strax ákvörðun og lýsa því yfir að hann muni ekki segja af sé heldur ætli að vera áfram í forustu flokksins í Reykjavík og verða borgarstjóri eftir 14 mánuði.  Þá virkilega myndi hann rasskella rækilega þetta lið sem er í dag að vina gegn honum innan flokksins.  Vilhjálmur er mjög reyndur stjórnmálamaður og góður drengur og hefur unnið mikið fyrir sinn flokk og á þess vegna ekki skilið þessa meðferð hjá flokknum.

"Áfram gamli góði Villi"


Seldi sig

Teri Hatcher.Bandaríska leikkonan Teri Hatcher seldi sjálfa sig nýverið fyrir 50.000 dollara, sem nemur um 3,3 milljónum íslenskra króna. Þetta gerði hún á sérstökum gala-kvöldverði sem haldinn var í Las Vegas til styrktar fólki með alzheimer sjúkdóminn.

Ja hérna dýrt er hvert kíló og það eina sem sá aðili fær fyrir sínar 3,3 milljónir er að bjóða leikkonunni í hádegisverð.  Af hverju fékk maðurinn sér ekki bara pylsu með öllu eins og Clinton forðum.


mbl.is Hatcher seldi sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vetur

Veðurstofa Íslands spáir í dag suðvestan 5-13 metrum á sekúndu. Þokusúld eða rigning með köflum sunnan- og vestanlands en annars skýjað með köflum. Suðlægari, 5-10, á morgun og úrkomuminna. Hiti 3 til 8 stig.

Hverskonar rugl er þetta orðið 3-8 stiga hiti um hávetur.  Nú á að vera hörkufrost og allt á kafi í snjó, en þetta er bara eins og við sögðum oft á sjónum, er bara EKKERT veður.


mbl.is Skýjað og súld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á von á hefndum

Ehud Barak, varnamálaráðherra ÍsraelEhud Barak, varnamálaráðherra Ísraels sagðist í dag eiga von á að Hisbollah hreyfingin geri árásir á Ísrael með hjálp Írana og Sýrlendinga til að hefna fyrir morðið á Imad Mugnieh, einum leiðtoga samtakanna.

Ég held að hann geti verið alveg áhyggjulaus, þótt þessi samtök fengju aðstoð frá Íran og Sýrlandi, þá hafa Ísraelar löngum sýnt það að þeir kunna að verja land sitt.  Það eina sem hefðist upp úr þessu væri það að Ísrael myndi hertaka bæði þessi ríki og ég er ansi hræddur um að ráðamenn bæði í Íran og Sýrlandi hugsi sig um tvisvar áður en þeir færu út í slíka vitleysu.  Ég sé ekkert athugavert þótt þessi náungi hafi verið drepinn.  Hann átti ekkert annað skilið miðað við hans fyrri verk.


mbl.is Barak á von á hefndaraðgerðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Madonna

Madonna.Söngkonan Madonna segir að sig dreymi um að gerast sígauni. „Ég er mjög hrifin af þeirri hugmynd að ferðast út um allt, spila tónlist og hafa ekki hugmynd um hvað framtíðin ber í skauti sér,“ sagði Madonna í kjölfarið á frumsýningu Filth and Wisdom, fyrstu kvikmyndarinnar sem hún leikstýrir.

Af hverju lætur hún þá ekki verða af því og láta þennan draum rætast.  En sennilega nær þetta ekki lengra hjá henni en að láta sig bara dreyma um þetta.


mbl.is Vill gerast sígauni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýtt ríki í Evrópu

Mikill fögnuður var á götum Pristina höfuðborg Kosovo-héraðs í nótt. Tugir þúsunda Kosovo-Albana dönsuðu á götum Pristina, höfuðborgar héraðsins í nótt eftir að Hashim Thaci, forsætisráðherra héraðsins, gaf í skyn í gær að sjálfstæði þess yrði lýst yfir í dag. Fólkið skaut upp flugeldum og veifaði fána Albaníu. Þetta kemur fram á fréttavef BBC.

Þessi gleði er auðskilin, þetta aumingja fólk sem þarna býr og er flest af Albönskum ættum, hefur verið ofsótt af Serbum í mörg ár og hafa Sameinuðu Þjóðirnar þurft að vera með gæslulið í Kósóvó til að hindra Serba í að drepa ekki alla sem ekki eru Serbar.  Ég ætla að vona að sem flest lönd virði Kósóvó sem sjálfstætt fullvalda ríki.


mbl.is Dansað á götum Pristina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfstæðismenn í skóla

Nú auglýsir Sjálfstæðisflokkurinn stíft Stjórnmálaskóla Sjálfstæðisflokksins og greinilegt að nú verða borgarfulltrúar að setjast á skólabekk til að læra um hvað stjórnmál snúast, en það virðast þeir ekki hafa vitað fram að þessu.  Bjarni Benediktsson alþingismaður sagði í útvarpinu fyrir stuttu að þessi þögn allra borgarfulltrúanna væri í raun vantraust á Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson og þeir væru nánast að segja Vilhjálmi að koma sér í burtu.  Vilhjálmur sagði á blaðamannafundinum fræga í Valhöll að hann ætlaði að skoða sína stöðu í samáði við aðra borgarfulltrúa flokksins.  Hingað til hefur aðeins einn þeirra þ.e. Kjartan Magnússon lýst yfir afdráttarlausum stuðningi við Vilhjálm allir hinir segja að ekki sé tímabært að segja neitt fyrr en Vilhjálmur er búinn að gera upp hug sinn.  Nú er þegar hafinn grimmur slagur um eftirmann Vilhjálms og þar berjast Hanna Birna, Gísli Marteinn, Júlíus Vífill og Kjartan Magnússon.  Þessi stuðningur Kjartans við Vilhjálm var klókt bragð, því þar með fær hann stuðning forustu flokksins og er kominn mörgum skerfum á undan hinum sem keppa um þetta sæti.  en sennilega verður ekkert þeirra valið heldur verður Markús Örn, sem nú er í geymslu í Þjóðmenningarhúsinu, látinn í sæti borgarstjóra eftir 14 mánuði og látinn sitja út kjörtímabilið.  Á meðan sígur fylgi flokksins í borginni stöðugt niður á við.  Það kæmi mér ekki á óvart að í kosningunum 2010 fengi Samfylkingin hreinan meirihluta í borginni, ef ekki þá Samfylkingin og VG og þá fyrst væri hægt að stýra Reykjavíkur borg af viti.  Það er ekki hægt í dag því allt er í uppnámi og reyndir starfsmenn á hinum ýmsu sviðum borgarmálanna er farnir að forða sér úr þessu stjórnleysi.


Slagsmál og ölvun

Mynd 405764 Mikil ölvun var í miðbæ Reykjanesbæjar í nótt og gærkvöldi og voru miklar annir hjá lögreglunni. Nokkuð var um slagsmál og fengu nokkrir að gista fangaklefa sökum óláta og ölvunar í bænum. Þá er ökumaður sem stöðvaður var af lögreglu í gærkvöldi grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.

Er það svona sem íbúar í Reykjanesbæ vilja skemmta sér?  Ég held ekki, þetta munu víst hafa verið fólk úr öðrum bæjarfélögum, þetta voru nokkrir Hafnfirðingar, 3 úr Garðabæ, 12 úr Breiðholti einnig fólk af Suðurlandi, einn frá Vestmannaeyjum.  Íbúar í Reykjanesbæ láta ekki svona, nema einstaka pólverjar að rífa kjaft en það gerir nú ekkert til því þá skilur enginn.


mbl.is Ölvunarerill í Reykjanesbæ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kjarasamningar

Forvarsmenn Starfsgreinasambandsins á fundi hjá ríkissáttasemjara. Kristján Gunnarsson, formaður Starfsgreinasambandsins, segir frestun á viðræðum sambandsins við Samtök atvinnulífsins nú í kvöld fremur vera tæknilega bið en alvarleg slit á viðræðum.

Ég sem var að vona að þett kláraðist í dag, en auðvitað þurfa þessir menn að hvíla sig eins og aðrir.


mbl.is „Fremur bið en viðræðuslit"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband