Bloggfærslur mánaðarins, september 2008

Fjárhagsvandræði

Mynd 293165 Erlendar skuldir heimilanna hafa hækkað um 129% á einu ári og eru nú um 245 milljarðar króna. Á sama tíma hefur gengi krónunnar fallið um 43% og er genginu því ekki einu um að kenna hvernig komið er. Ásta S. Helgadóttir, forstöðumaður Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna, segir þeim hafa fjölgað mikið sem leita sér aðstoðar hjá stofunni.

Fólk getur sjálfum sér um kennt, því í góðærinu undanfarin ár hafa fáir sparað.  Fólk hefur keypt og keypt allt það sem því langað til og allt á lánum með dýrum vöxtum.  Ef bíll bilar, þá er honum bara hent og nýr keyptur í staðinn.


mbl.is Stöðugt fleiri leita aðstoðar vegna skulda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ásdís Rán

Ásdís RánÁsdís Rán Gunnarsdóttir fyrirsæta er nú á batavegi eftir uppskurð sem hún gekkst undir í Búlgaríu um helgina. Ásdís greindist með æxli í kviði sem rofið hafði gat á eggjastokk en það leiddi til töluverðra innvortis blæðinga, eins og lesa mátti um í Morgunblaðinu og mbl.is í gær.

Hún má nú bara þakka fyrir að vera á lífi og auðvitað á hún að fara að ráðum lækna, þótt það kosti það að hún missi af einhverri keppni.  Fólk kann aldrei að meta góða heilsu fyrr en það lendir í einhverju áfalli sjálft.

Hundrað þúsund sinnum hef ég hugsað um hvað lífið væri gott ef ég væri ekki fatlaður öryrki eftir slys.


mbl.is Ásdís Rán tekur það rólega næstu mánuði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veður

Eigendur báta í Reykjavíkurhöfn huguðu að þeim í gærkvöldi... Veður virðist vera að ganga niður á Akureyri samkvæmt upplýsingum lögreglunnar þar. Nokkuð var um fok á lausamunum í umdæmi Akureyrarlögreglunnar í nótt en hjálparbeiðnum hefur fækkað með morgninum. Þá segir lögregla að um minniháttar atvik hafi verið að ræða.

Það er eins og maðurinn sagði;

"Að á Íslandi hefur aldrei komið svo slæmt veður að það lagaðist ekki aftur."


mbl.is Virðist vera að lygna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samdráttur

Mynd 455116 Útlit er fyrir að uppsveiflu á íbúðamarkaði sé lokið í bili. Fjárfesting í íbúðarhúsnæði hefur dregist saman um 30% á fyrri helmingi ársins og á sama tíma hefur nafnverð íbúða staðið í stað. Verðlækkun viðist óhjákvæmileg, að mati Greiningar Glitnis og gerir deildin ráð fyrir að samdráttur muni ríkja á íbúðamarkaði fram til loka næsta árs og húsnæðisverð lækka á sama tímabili.

Þetta hlaut að taka enda og nú þegar eru til 3-4 þúsund íbúðir fullbúnara á höfuðborgarsvæðinu sem ekki seljast.  Væri ekki tilvalið að ríkið og sveitarfélögin keyptu þessar íbúðir og settu á leigumarkaðinn, þar sem alltaf vantar íbúðir.  Ef ekkert verður gert þá munu allar þessar óseldu íbúðir komast í eigu bankanna eða Íbúðalánasjóðs.  Er þá ekki betra að grípa strax inn í svo þessar íbúðir verði nýttar og forða eigendum þeirra í dag frá gjaldþroti.


mbl.is Spá samdrætti til 2010 á fasteignamarkaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

RÚV

Helgi Seljan. Í ljósi breytinga hjá RÚV og brotthvarfs Elínar Hirst sem fréttastjóra Sjónvarpsins rifjast upp saga þegar sviptingar áttu sér stað í Efstaleitinu fyrir rúmum þremur árum. Ungur blaðamaður frá DV að nafni Helgi Seljan fékk það hlutverk að reyna fiska fréttir um Auðun Georg Ólafsson og mótþróa innanhúss gegn ráðningu hans sem fréttastjóra Útvarps hjá RÚV.

Eins og margir muna sjálfsagt þá afþakkaði Auðunn Georg stöðuna svo þetta hefur aldrei náð því að verða frétt.  Ekki veit ég hvort þessi breyting verði til góðs en ég sé alla veganna eftir Elínu Hirts.


mbl.is Hljóðritaði fund, falinn undir borði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tónleikar

Hrafnkell Flóki Einarsson og Steinar Jónsson „Þetta gekk ekki alveg nógu vel. Ég veit ekki hvort fólk er svona fátækt í dag eða hvort tímasetningin var röng en þarna voru bestu hljómsveitir landsins að spila,“ segir Steinar Jónsson, skipuleggjandi Iceland Music Fest-tónlistarhátíðarinnar sem haldin var í Tunglinu um helgina. Illa seldist á hátíðina og tók Steinar til þess ráðs að aflýsa laugardagskvöldinu sökum slakrar miðasölu.

Það fara nú ekki allir í fótspor Einars Bárðarsonar, en auðvitað spilar þarna inn í að fólk er að spara til að halda sínum eignum.


mbl.is „Mínir vasar eru tómir“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tap

 Tap á rekstri bresku verslunarkeðjunnar Woolworths nam 90,8 milljónum punda, jafnvirði nærri 15 milljarða króna, á fyrri hluta ársins. Ákvað stjórn félagsins að stöðva arðgreiðslur til hluthafa. Baugur á um 11 prósent í Woolworths og er annar stærsti hluthafinn í félaginu.

Það virðist vera sama hvar borið er niður að allstaðar eru fyrirtæli að skila tapi af sínum rekstri.


mbl.is Mikið tap á rekstri Woolworths
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samið við ljósmæður

Ljósmæður á félagsfundi í gærkvöldi þar sem... Ljósmæður fá allt að 21% launahækkun, samkvæmt miðlunartillögu sem ríkissáttasemjari lagði fram í launadeilu ljósmæðra og ríkisins í gær Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag. Rafræn atkvæðagreiðsla hefst meðal ljósmæðra um tillöguna í dag en forustumenn Ljósmæðrafélags Íslands hafa mælt með því að tillagan verði samþykkt.

Loksins er þá búið að semja við ljósmæður.  En framundan er löng samningshrina, því flestir kjarasamningar eru lausir um áramót.


mbl.is Ljósmæður fá allt að 21% hækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lokaðir vegir

Vegur 61 um Gervidal í Ísafirði er enn lokaður vegna vatnaskemmda en stefnt er að opnun hans upp úr hádegi. Á sunnanverðum Vestfjörðum er Barðastrandavegur einnig lokaður vegna vatnaskemmda og Örlygshafnavegur lokaður vegna aurskriða.

Þetta er alvanalegt þegar svona mikið vatnsveður gengur yfir.


mbl.is Aurskriður og vatnaskemmdir á Vestfjörðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ný atvinna

Mér var sagt upp störfum hjá Gulltog ehf. 11. ágúst og ekki óskað eftir því að ég ynni uppsagnarfrestinn.  Ástæðan var sögð sú að ég hefði bloggað um að búið væri að selja skip félagsins til Rússlands og nú fengi ég vonandi öll ógreiddu launin mín en ég átti inni laun frá því í apríl.  Mér var tjáð að þetta hefði verið trúnaðarmál.  Samt var skipið skráð til sölu hjá skipasölunni Álasundi í Keflavík og allir gátu séð það og þegar skipið var selt sendi Álasund frá sér fréttatilkynningu um að skipið væri selt til Rússlands.  Ég veit ekki hvaða feluleikur átti að vera þarna í gangi, því um leið og skip er skráð til sölu er það öllum opinbert og hver sem er og hefði haft áhuga á skipinu hefði fengið þau svör að skipið væri selt til Rússlands.  Auðvitað á maður ekki að setja hér á bloggið  upplýsingar sem maður fær í vinnunni og mun ég passa mig betur á því atriði í framtíðinni.  Nokkrum dögum seinna er ég boðaður á fund hjá Gulltog ehf. og ráðinn aftur, en þegar ég ætlaði að mæta í vinnu var mér tjáð að þetta hefðu verið mistök og mér sagt upp i annað sinn.  Ég spurði þá um ógreiddu launin mín og var sagt að þau yrðu greidd.  Nokkrum dögum seinna voru greidd launin fyrir apríl og ekki meir.  Hinsvegar fékk ég tölvupóst frá framkvæmdastjóranum þar sem gefið var í skin að óvíst væri hvort ég fengi greitt meira og þau skildu ekki hvað ég hefði verið að gera allan þennan tíma og gefið í skin að ég hefði ekki unnið fyrir laununum mínum.  Ég svaraði þessu bréfi á þann veg að ég hefði verið að færa bókhaldið og gat þess jafnframt að það væri á ábyrgð framkvæmdastjóra að sjá til þess að bókhald væri fært á hverjum tíma og auk þess hefði ég þurft að svara stöðugt í símann aðilum sem voru að rukka, einnig nefndi ég að það væri ekki við bókarann að sakast þótt eignir dygðu ekki fyrir skuldum.  En framkvæmdarstjórinn dvaldi megnið af sumrinu á Spáni í sumarhúsi þeirra hjóna, því hún treysti sér ekki til að svara fyrir fyrirtækið þegar ekkert væri hægt að greiða.  Nú er staða mín gagnvart þessu fyrirtæki sú að ég hef gengið greitt tvo mánuði af 9 og eru þessir 7 mánuðir í lögfræðiinnheimtu hjá mínu stéttarfélagi.

Ég var einn daginn að bíða á læknastofu í Keflavík og eins og maður gerir oft þá fór ég að lesa blöðin sem þar voru og í blaðinu Víkurfréttum var auglýsing frá fiskvinnslufyrirtæki í Sandgerði um að það vantaði vanan bókara sem fyrst.  Ég hafði ekki hugmynd um hvaða fyrirtæki þetta væri en hringdi og sótti um og nokkrum dögum seinna var ég boðaður á fund hjá þessu fyrirtæki og þar tóku á móti mér ung hjón.  Þau útskýrðu fyrir mér sinn rekstur og buðu mér starfið sem ég að sjálfsögðu þáði með þökkum.  Þetta er indælisfólk enda bæði Vestfirðingar og þarna byrjaði ég að vinna 15. sept.  Þar sem verið er að útbúa skrifstofuaðstöðu í húsnæði fyrirtækisins verð ég að vinna þetta hérna heima þar til sú aðstaða er tilbúinn.  Ég er búinn að koma þarna nokkrum sinnum og þarna er starfsandinn allt annar og betri en var hjá Gulltog ehf.  Er ég því í dag bara feginn að mér var sagt upp hjá Gulltog ehf. því annars hefði ég ekki farið að leita mér að annarri vinnu og mikil heppni að detta niður á þetta starf.  Er nú bara nokkuð bjart framundan hjá mér hvað fjárhaginn varðar.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband